---
title: "Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn?"
description: "Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn? Síðustu 10 ár hefur lýsingarheimurinn séð meiri breytingar í ljóstækni heldur er öll 60 árin þar á undan og við stefnum hratt áfram í þróun á…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/ny-kynslod-ljosgjafa-hver-er-framtidar-ljosgjafinn"
---

# Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn?

29. mars 2017

Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn? Síðustu 10 ár hefur lýsingarheimurinn séð meiri breytingar í ljóstækni heldur er öll 60 árin þar á undan og við stefnum hratt áfram í þróun á ljósgjöfum. En hvaða ljósgjafa höfum við í höndunum í dag og í hvað stefnir? Verður orðatiltækið; „Að kveikja á perunni“ brátt eitthvað sem tengir okkur við fortíðina líkt og videótæki og vasadiskó? Er LED komið til að vera eða tekur OLED við af LED?

<a id="ny-kynslod-ljosgjafa-hver-er-framtidar-ljosgjafinn"></a>

### Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn?

Síðustu 10 ár hefur lýsingarheimurinn séð meiri breytingar í ljóstækni heldur er öll 60 árin þar á undan og við stefnum hratt áfram í þróun á ljósgjöfum. En hvaða ljósgjafa höfum við í höndunum í dag og í hvað stefnir?

Verður orðatiltækið; „Að kveikja á perunni“ brátt eitthvað sem tengir okkur við fortíðina líkt og videótæki og vasadiskó? Er LED komið til að vera eða tekur OLED við af LED?

Er framtíðarljósgjafinn kannski Laser? Í allri þessari þróun má þó ekki gleyma grunnatriðum lýsingar og farið verður yfir hvaða þætti þarf að hafa í huga við val á ljósgjafa, eins hverjir eru kostir og gallar nútíma ljósgjafa.

Hvernig skipti ég um peru? - hefur sem sagt öðlast nýja merkingu með þróun ljósgjafa.

**Fyrirlesari:** Rósa Dögg Þorsteinsdóttir - Lýsingarhönnuður og innanhússarkitekt fhi

**Fundartími:** Miðvikudagur 29.mars 2017 kl.20:00 - 22:00.

**Fundarstaður:**  Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð

![Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn?](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e98be0ca-cbe5-4c86-a472-00f285dd6a24)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/ny-kynslod-ljosgjafa-hver-er-framtidar-ljosgjafinn
