---
title: "Október 2014: Um höfundarrétt á rafrænum miðlum"
description: "Kvöldfyrirlestur Miðvikudaginn 12.október 2014 Um höfundarrétt á rafrænum miðlum Tveir fyrirlesarar munu halda fyrirlestra um „Höfundarrétt á rafrænum miðlum“. 1. Stafræn dreifing á efni – hvað má og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/november-2014-um-hofundarrett-a-rafraenum-midlum"
---

# Október 2014: Um höfundarrétt á rafrænum miðlum

12. nóvember 2014

Kvöldfyrirlestur Miðvikudaginn 12.október 2014

**Um höfundarrétt á rafrænum miðlum**

Tveir fyrirlesarar munu halda fyrirlestra um „Höfundarrétt á rafrænum miðlum“.

**1. Stafræn dreifing á efni – hvað má og hvað má ekki?**

Guðrún Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri STEFs mun í erindi sínu reyna að svara eftirfarandi spurningum:

- Er hægt að stefna einstaklingi fyrir brot á lögum þegar hann dreifir efni í gegnum torrentsíðu?
- Hvað ef viðkomandi einstaklingur hleður eingöngu niður efni en ekki upp efni, er það í lagi?
- Er Netflix löglegt á Íslandi?
- Er lokun á aðgengi að ólöglegum vefsíðum brot á tjáningarfrelsi?
- Er þetta ekki bara spurning um að auka löglegt framboð?
- Er Pirate Bay ekki bara góður kynningarvettvangur fyrir tónlistarmenn sem eykur sölu á verkum þeirra?
- Hvenær á að greiða fyrir opinberan flutning tónlistar?
- Ef kveikt er á útvarpinu í verslun og greitt útvarpsgjald er þá ekki um leið búið að greiða fyrir opinberan flutning tónlistarinnar?
- Hvað ef verslunin er í rými þar sem heyrist tónlist frá sameign?

**2. Sjónvarpsdreifing á hótelum – opnar og lokaðar sjónvarpsrásir?**

Hólmgeir Baldursson framkvæmdastjóri Filmflex heldur fyrirlestur um höfundarétt á sjónvarpsefni til hótela, en fyrirtækið Filmflex býður úrval af slíku sjónvarpsefni til hótelrekenda. Hólmgeir mun í erindi sínu reyna að svara eftirfarandi spurningum:

- Undir hvað falla viðskiptaréttindi okkar.
- Freeview – Freesat- Er þetta í lagi?
- Áskriftir símafélaganna til hótela og gistiheimila
- Hvað felst í einkaréttindum Filmflex.
- Hvað er að gerast?
- Hverju svara hótelin?
- Hvað segja rafiðnaðarmenn?
- Hvert stefnir?
- VOD og önnur nýmiðlun

Fundartími: Miðvikudagur 12.nóvember kl. 20.00 - 22:00

Fundarstaður: Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð

![Október 2014: Um höfundarrétt á rafrænum miðlum](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/83ac5b1f-89b8-4a5f-89a6-71934e4d5d39)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/november-2014-um-hofundarrett-a-rafraenum-midlum
