---
title: "Nokkrar nýjungar á Rafbók.is"
description: "Nú er hægt að vista og deila tenglum á möppur og leitarniðurstöður í safninu og PDF-hefti opnast beint inni á Rafbók.is"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nokkrar-nyjungar-a-rafbokis"
---

# Nokkrar nýjungar á Rafbók.is

1. september 2026

Nú er hægt að vista og deila tenglum á möppur og leitarniðurstöður í safninu og PDF-hefti opnast beint inni á Rafbók.is

#### Möppur og leit fá eigin slóð

Hingað til var ekki hægt að afrita tengil beint inn á ákveðna möppu. Nú fær hver mappa eigin slóð, til dæmis `rafbok.is/folder/0B6c…MEk`, sem má setja í bókamerki eða til að deila.

⌂ Skrár› Tölvur og nettækni›Tölvur og nettækni PDF

#### Leit í þeirri möppunni sem þú ert í

Leitin virkar ekki aðeins til að leita í öllu safninu, heldur getur þú núna leitað í þeirri möppu sem þú ert í og birtast þá allar skrár og undirmöppur hennar. Á forsíðu leitar hún eins og áður í öllu safninu.

⌂ Skrár› Tölvur og nettækni› **🔍 Leit** 🔍Leita í „Tölvur og nettækni“...

Leitarorðið fer í slóðina (`?q=tnt`) svo leit má vista og deila alveg eins og möppu.

Undir hverri niðurstöðu stendur í hvaða möppu skjalið er; *í Tölvur og nettækni PDF* .

#### PDF-hefti opnast inni á Rafbók

Nú höfum við bætt við innbyggðum lesara og opnast því skjölin inni á `rafbok.is/` í stað inni á Google Drive.

#### Aftur á réttan stað eftir innskráningu

Ef þú opnar tengil á möppu eða hefti án þess að vera skráð(ur) inn, ferðu á innskráningu og svo beint þangað sem þú ætlaðir. Áður endaði maður alltaf á forsíðu.

![Nokkrar nýjungar á Rafbók.is](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/37604336-f723-443e-a3df-c17f894c6b06)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nokkrar-nyjungar-a-rafbokis
