---
title: "Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands ánægðir"
description: "Í fréttatíma RÚV í gærkvöldi (7. maí) var rætt við nemendur Kvikmyndaskóla Íslands sem lýstu ánægju sinni með námið og starfsemi skólans."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nemendur-kvikmyndaskola-islands-anaegdir"
---

# Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands ánægðir

8. maí 2025

Í fréttatíma RÚV í gærkvöldi (7. maí) var rætt við nemendur Kvikmyndaskóla Íslands sem lýstu ánægju sinni með námið og starfsemi skólans.

Í fréttatíma RÚV í gærkvöldi (7. maí) var rætt við nemendur Kvikmyndaskóla Íslands sem lýstu ánægju sinni með námið og starfsemi skólans. Nemendurnir sögðu námið veita góða undirstöðu og hagnýta færni sem nýtist beint í atvinnulífinu. Þá lögðu þeir áherslu á mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi stuðning við skólann og kvikmyndatengt nám hér á landi.

Í umfjölluninni kom einnig fram skýrt ákall til menntamálaráðherra um að styrkja rekstrargrundvöll skólans og tryggja honum sambærilega stöðu og öðrum framhaldsskólum sem bjóða upp á sérhæft listnám.

👉 Sjáðu fréttina á [RÚV.](https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/b0j8if/nemendur-skora-a-radherra)

![Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands ánægðir](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/33d69d98-52a5-4ff0-bba3-be7c0127e6d8)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nemendur-kvikmyndaskola-islands-anaegdir
