---
title: "Vinnuslys: námskeið hefst 12. febrúar"
description: "Næsta námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf. Hvað er vinnuslys, óhapp og næstum slys?"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-vinnuslys"
---

# Vinnuslys: námskeið hefst 12. febrúar

5. febrúar 2024

Næsta námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf. Hvað er vinnuslys, óhapp og næstum slys?

**Námskeið í samstarfi við** **[Vinnuverndarnámskeið ehf](https://vinnuverndarnamskeid.is/)****.**

**Áfangaheiti: ÖRYG03SLYS**

**Hvað er vinnuslys, óhapp og næstum slys?**

Farið verður yfir nokkrar skilgreiningar á vinnuslysum. Er skylda að skrá og tilkynna öll vinnuslys til Vinnueftirlitsins? Hverjar eru algengustu orsakir vinnuslysa? Hvaða forvörnum er vænlegast að beita til að koma í veg fyrir vinnulsys. Settar verða fram skilgreingar á þremur stigum forvarna vegna vinnuslysa. Hugmyndafræði Safety I og II er kynnt. Þátttakendur greina myndir og myndbönd af raunverulegum vinnuslysum. Að lokum er fjallað stuttlega um tölfræði vinnuslysa.

**Hvar?** Fjarkennsla í gegnum Teams.

**Hvenær?** 12. febrúar frá kl. 13:00 - 16:00.

Skráning [hér!](https://www.rafmennt.is/namskeid/vinnuslys-vn)

![Vinnuslys: námskeið hefst 12. febrúar](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/26c91675-bee8-48af-a6d0-06f4e7dbaef2)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-vinnuslys
