---
title: "Námskeið í samstarfi við Endurmenntun Hí"
description: "RAFMENNT og Endurmenntun Hí bjóða upp á 3 námskeið fyrir félagsmenn"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-i-samstarfi-vid-endurmenntun-hi"
---

# Námskeið í samstarfi við Endurmenntun Hí

27. október 2020

RAFMENNT og Endurmenntun Hí bjóða upp á 3 námskeið fyrir félagsmenn

<a id="rafmennt-og-endurmenntun-hi-bjoda-upp-a-3-namskeid-fyrir-felagsmenn"></a>

### RAFMENNT og Endurmenntun Hí bjóða upp á 3 námskeið fyrir félagsmenn

#### Lestur ársreikninga - Fjarkennsla

#### 19. - 20. nóvember

Ársreikningar félaga koma mikið við sögu í efnahagslífinu og efni þeirra snertir líf margra beint og flestra annarra óbeint.

Hvaða boðskap flytja ársreikningar okkur? Gefa þeir trúverðuga mynd af starfsemi viðkomandi félaga?

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/lestur-arsreikninga)

#### Fjármál við starfslok - Fjarkennsla

#### 21. nóvember

Fróðlegt og gagnlegt námskeið um það sem mikilvægast er að hafa á hreinu þegar starfsævi lýkur.

Vandlega verður farið yfir þær breytingar sem vefjast fyrir mörgum, svo sem varðandi Tryggingastofnun,

lífeyrismál, skatta og sparnað.

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/hugad-ad-starfslokum-1)

#### Verkefnastjórnun - fjarkennsla

#### 2. desember

Ertu í sjálfstæðum rekstri og með marga bolta á lofti?

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig nýta má aðferðir verkefnastjórnunar við að skipuleggja starfsemina

svo hægt sé að hámarka árangur og virði. Unnið verður að persónulegum verkefnum á meðan námskeiðinu stendur.

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/verkefnastjornun)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-i-samstarfi-vid-endurmenntun-hi
