---
title: "Námskeið í maí"
description: "Nú er vorönnin að verða búin og því tilvalið að skrá sig á námskeið áður en sumarið tekur völdin"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-i-mai"
---

# Námskeið í maí

4. maí 2021

Nú er vorönnin að verða búin og því tilvalið að skrá sig á námskeið áður en sumarið tekur völdin

**Það er tilvalið að skrá sig á þessi seinustu námskeið vorannar áður en sumarið tekur völdin.**

#### **Brunaþéttingar**

**Fjarkennsla**

**11. maí**

**kl: 13:00 - 17:00**

Viðfangsefni námskeiðsins eru hinar ýmsu gerðir af brunaþéttingum.

**Athugið:** Þáttakenndur sem ljúka þessu námskeiði fá heimild til þess að starfa við brunaþéttingar þar sem fyrir liggur starfsleyfi frá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun og eiga þá einnig kost á því að sækja um starfsleyfi sjálfir að fengnu meistarabréfi.

Eftir þetta námskeið hafa þáttakenndur einnig heimild til þess að lagfæra brunaþéttingar eftir sjálfa sig og eftir aðra iðnaðarmenn.

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/brunathettingar)

#### **Hleðslustöðvar**

**Fjarkennsla**

**12. maí**

**kl: 13:00 - 17:00**

Rafbílahleðslur

Hvaða forsendur þurfa að liggja fyrir þegar setja á upp rafbílahleðslustöðvar í einbýli/fjölbýli.

Regluverk varðandi hleðslustöðvar við sameignir húsfélaga.

ofl.

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/hledslustodvar)

#### **Lestur útboðsgagna**

**Fjarkennsla**

**18. - 20. maí**

**kl: 17:00 - 19:00**

Útboðsgögn tækifæri og áhættur.
Viðfangsefni kynningarinnar er að skoða framsetningu útboðsgagna og velta fyrir sér tækifærum og áhættu sem felast í að bjóða í verkefni. Farið verður yfir helstu þætti sem hafa ber í huga varðandi staðal IST 30. Framtíð í útboðum verður skoðuð með tilliti til umhverfisvottana í verkefnum.

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/lestur-utbodsgagna)

#### **Hraðastýringar / Tíðnibreytar fyrir mótora**

**Stórhöfði 27**

**19. maí**

**kl: 8:30 - 12:30**

Á námskeiðinu verður farið yfir val, virkni, tengingar , forritun , ( nettengingar,) gangsetningar og prófanir á hraðabreytum / tíðnibreytum frá meðal
annars ABB - Danfoss - Rockwell og Schneider.

[Nánar](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/hradastyringar-motora)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-i-mai
