---
title: "Námskeið í gervigreind hjá Rafmennt"
description: "Rafmennt býður upp á hagnýt námskeið í gervigreind þar sem áhersla er lögð á notkun tveggja öflugra verkfæra – ChatGPT og Claude. Gervigreind er í auknum mæli orðin hluti af daglegu starfi og getur…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-i-gervigreind-hja-rafmennt"
---

# Námskeið í gervigreind hjá Rafmennt

21. apríl 2026

Rafmennt býður upp á hagnýt námskeið í gervigreind þar sem áhersla er lögð á notkun tveggja öflugra verkfæra – ChatGPT og Claude. Gervigreind er í auknum mæli orðin hluti af daglegu starfi og getur nýst til að einfalda verkefni, auka skilvirkni og bæta vinnubrögð.

Rafmennt býður upp á hagnýt námskeið í gervigreind þar sem áhersla er lögð á notkun tveggja öflugra verkfæra – ChatGPT og Claude.

Gervigreind er í auknum mæli orðin hluti af daglegu starfi og getur nýst til að einfalda verkefni, auka skilvirkni og bæta vinnubrögð.

#### [Hagnýtar gervigreindarlausnir – ChatGPT](https://www.rafmennt.is/namskeid/hagnytar-gervigreindarlausnir)

Á námskeiðinu **Hagnýtar gervigreindarlausnir** er farið yfir hvernig nýta má ChatGPT í daglegri vinnu.
Áhersla er lögð á:

- textagerð og upplýsingavinnslu
- sjálfvirknivæðingu einfaldra verkefna
- betri nýtingu gervigreindar í starfi

#### [Nýtt námskeið – Claude](https://www.rafmennt.is/namskeid/claude)

Námskeiðið **Claude** er nýtt hjá Rafmennt og fjallar um hvernig nýta má Claude til ítarlegri textavinnslu og greiningar.
Þátttakendur læra að:

- vinna markvisst með gögn og texta
- fá nákvæmari og gagnlegri niðurstöður
- beita verkfærinu í faglegu samhengi

Nánari upplýsingar og skráning má finna á vefsíðu Rafmenntar undir Endurmenntun \> Námskeið í boði

![Námskeið í gervigreind hjá Rafmennt](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e649546c-8f5e-42f0-9e79-c796db311ff7)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/namskeid-i-gervigreind-hja-rafmennt
