---
title: "Náðu betri tökum á Unifi-WIFI!"
description: "Náðu betri tökum á þráðlausum netkerfum með Unifi-WIFI námskeiðinu 13. -15. maí!"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nadu-betri-tokum-a-unifi-wifi"
---

# Náðu betri tökum á Unifi-WIFI!

6. maí 2026

Náðu betri tökum á þráðlausum netkerfum með Unifi-WIFI námskeiðinu 13. -15. maí!

Náðu betri tökum á þráðlausum netkerfum með Unifi-WIFI námskeiðinu 13. -15. maí!

Þráðlaus netkerfi gegna sífellt stærra hlutverki í daglegum rekstri fyrirtækja og heimila. Kröfur um hraða, stöðugleika og öryggi aukast stöðugt og þar skiptir rétt hönnun og uppsetning sköpum.

Rafmennt býður nú upp á hagnýtt námskeið í Unifi-WIFI þar sem þátttakendur fá innsýn í hvernig byggja má upp og reka nútímaleg þráðlaus netkerfi með faglegum hætti.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á:

- þekkja þráðlaus samskipti, sneiða fram hjá truflunum og tryggja dreifingu
- hvernig á að skipuleggja og setja upp netkerfi sem virkar í raunverulegum aðstæðum
- hvernig hægt er að fylgjast með, stýra og hámarka afköst kerfa
- hvernig nýta má skýjalausnir og stjórnunartól til að einfalda rekstur

Þessi þekking nýtist beint í starfi – hvort sem unnið er við uppsetningar, þjónustu eða rekstur netkerfa.

Námskeiðið hentar sérstaklega rafiðnaðar-og tæknifólki sem vill efla færni sína á sviði netkerfa og auka virði sitt á vinnumarkaði.

👉 [Nokkur sæti laus!](https://www.rafmennt.is/namskeid/unifi_wifi)

![Náðu betri tökum á Unifi-WIFI!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c894709d-b863-40ba-ab47-e0a8f32fbc5b)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nadu-betri-tokum-a-unifi-wifi
