---
title: "MÍN FRAMTÍÐ 2019"
description: "Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 14.-16. mars 2019."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/min-framtid-2019"
---

# MÍN FRAMTÍÐ 2019

4. mars 2019

Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 14.-16. mars 2019.

Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 14.-16. mars 2019.

Að þessu sinni hafa 28 faggreinar tilkynnt þátttöku sína á Íslandsmótinu. Keppendur munu takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Markmiðið með að halda svona keppni er að vekja áhuga grunnskólanemenda og annarra á iðn- og verknámi með því að láta ungt fólk sýna handbrögð og tækni sinnar greinar. Áhorfendur munu einnig fá tækifæri til að prófa hluti undir handleiðslu fagmanna í ýmsum greinum. Hér gefst tækifæri til að kynna sér spennandi starfsmöguleika í iðngreinum.

Á svæðinu verður einnig framhaldsskólakynning þar sem 33 framhaldsskólar munu kynna fjölbreytt námsframboð, bæði verklegt og bóklegt, og svara spurningum viðstaddra. Þetta mun vera í þriðja sinn sem framhaldsskólakynning er haldin á sama tima og Íslandsmót iðn- og verkgreina. Von er á um 7000 grunnskólanemendum sem munu mæta á svæðið á skólatíma á fimmtudeginum og föstudeginum.

**Gestir eru velkomnir á opnunartíma:**

- fimmtudagur 14.3. kl 9-17
- föstudagur 15.3. kl 9-17
- laugardagur 16.3. kl 10-16

Sjá nánar á http://www.verkidn.is/

![MÍN FRAMTÍÐ 2019](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/97b772ff-ecea-4a8c-a301-05678afdbee9)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/min-framtid-2019
