---
title: "Miðasalan er hafin á Bransadaginn 2026!"
description: "Bransadagurinn verður haldin hátíðlegur þann 13. janúar 2026. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með innlendum og erlendum sérfræðingum sem eiga erindi við fagfólk í lýsinga-, hljóð- og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/midasalan-er-hafin-a-bransadaginn-2026"
---

# Miðasalan er hafin á Bransadaginn 2026!

11. nóvember 2025

Bransadagurinn verður haldin hátíðlegur þann 13. janúar 2026. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með innlendum og erlendum sérfræðingum sem eiga erindi við fagfólk í lýsinga-, hljóð- og myndlausnum ásamt sviðstækni, kvikmyndagerð og sjónvarpsframleiðslu.

Bransadagurinn verður haldin hátíðlegur þann **13. janúar 2026.** Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með innlendum og erlendum sérfræðingum sem eiga erindi við fagfólk í lýsinga-, hljóð- og myndlausnum ásamt sviðstækni, kvikmyndagerð og sjónvarpsframleiðslu.

Bransadagurinn er einstakt tækifæri fyrir tæknifólk til að hittast, deila fróðleik og fræðast um nýja tækni.

#### [Almennt miðaverð er 12.000kr.](https://www.harpa.is/vidburdir/20629)

Innifalið í miðaverði er aðgangur að fyrirlestrum og vörusýningu frá samstarfsaðilum auk þess sem boðið verður upp á hádegismat og svo hressingu að dagskrá lokinni.

#### **Athugið að takmarkað magn miða er í boði.**

#### Afsláttarkjör

Skerpa – félag tæknifólks niðurgreiðir miða fyrir félagsfólk og kostar þá miðinn aðeins 4.000 kr.
Afsláttarkjör gilda til 31.12.2025.

Nánari upplýsingar um **Bransadaginn** má finna hér: [bransadagurinn.is/](https://bransadagurinn.is/)

![Miðasalan er hafin á Bransadaginn 2026!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/fb046031-b39f-4ebe-8567-dacb7a47daec)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/midasalan-er-hafin-a-bransadaginn-2026
