---
title: "Menntastefna rafiðnaðarins var haldin 29. október"
description: "Menntastefna rafiðnaðarins var haldin laugardaginn 29. október"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/menntastefna-rafidnadarins-var-haldin-29-oktober"
---

# Menntastefna rafiðnaðarins var haldin 29. október

31. október 2022

Menntastefna rafiðnaðarins var haldin laugardaginn 29. október

Menntastefna rafiðnaðarins var haldin laugardaginn 29. október, umfjöllunarefni ráðstefnunar var skipulag náms í rafiðngreinum.

Fundargestir voru einstaklingar af vinnumarkaðinum, úr skólakerfinu og aðrir sem koma að rafiðnaði.

Farið var yfir núverandi fyrirkomulag náms í rafiðngreinum, kosti þess og galla.

Lagðar voru fram tillögur sem m.a. höfðu verið ræddar í starfsgreinaráði að breytingum á fyrirkomulagi náms.

**Dagskrá og erindi voru fjölbreytt**

- **Sigursteinn Sigurðsson kennari í FB og formaður Félags kennara í rafiðngreinum**
- **Elsa Eiríksdóttir Dósent við Menntavísindasvið HÍ**
- **Óskar Ingi Sigurðsson kennari við VMA og formaður starfsgreinaráðs og Haukur Eiríksson kennari og brautarstjóri rafiðngreina við VMA**

Að loknum erindum var fundargestum gefið tækifæri til að ræða saman í hópavinnu og láta skoðanir sínar í ljós.

Áframhaldandi vinna verður unnin úr niðurstöðum og umræðum sem komu fram á ráðstefnunni.

**Við þökkum þeim sem sáu sér fært að mæta og tóku þátt í þessum skemmtilega og fræðandi degi**

[Hér má sjá myndir frá ráðstefnunni](https://www.flickr.com/photos/rafmennt/albums/72177720303313404)

![Menntastefna rafiðnaðarins var haldin 29. október](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/071c90d8-f47f-4dbc-b514-86fd280e8df7)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/menntastefna-rafidnadarins-var-haldin-29-oktober
