---
title: "MÆLITÆKNI í næstu viku."
description: "Námskeiðið Mælitækni er á dagskrá í næstu viku og enn eru laus sæti."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/maelitaekni-i-naestu-viku"
---

# MÆLITÆKNI í næstu viku.

30. nóvember 2016

Námskeiðið Mælitækni er á dagskrá í næstu viku og enn eru laus sæti.

Farið er í uppbygging og notkunarmöguleika fjölsviðsmæla, sveiflusjáa (hlið- og stafrænna) og annarra mælitækja í rafeindatækni. Áhrif mismunandi mælikanna (probes) á mælingarniðurstöður. Upprifjun á grunnmælingum íhluta, eins og díóða, transistora og farið í aðferðir til að mæla rýmd og span. Notkun kassabylgjumerkja við mælingar á mögnurum, fæðilínum og köplum (t.d. standbylgjur og lengdir). Þetta námskeið er æskilegt sem grunnur fyrir önnur námskeið þar sem mælitæki eru notuð.

**Fyrir hverja:**
Þá sem vilja rifja upp og/eða auka við þekkingu sína á mælitækni.

**Undirstaða:**
Rafiðnaðarnám eða sambærileg þekking.

**Lengd:** 3 dagar

![MÆLITÆKNI í næstu viku.](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/6697279d-b8ae-4a16-b546-a4286e7f74d6)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/maelitaekni-i-naestu-viku
