---
title: "LED lýsing"
description: "Laus sæti í námskeiðið LED lýsingu, Þriðjudaginn 15. okt Spennandi námskeið og tilvalið að skrá sig!"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/led-lysing"
---

# LED lýsing

11. október 2019

Laus sæti í námskeiðið LED lýsingu, Þriðjudaginn 15. okt Spennandi námskeið og tilvalið að skrá sig!

**Laus sæti og því tilvalið að skrá sig á spennandi námskeið í LED lýsingu**

Allt frá glóperubanninu árið 2012 hefur LED ljósgjafinn tekið við af öllum helstu ljósgjöfum, ljóstækninni hefur fleytt áfram og nýjar áskoranir litið dagsins ljós. Farið verður yfir nýjungar í ljóstækni og þær sem væntanlegar eru með fyrirlestrum og sýnikennslu.

Boðið verður upp á sýnikennslu og líflegar umræður þar sem algengum spurningum um LED verður reynt að svara, líkt og: Hvað er góður líftími á LED? Hvað er “human centric lighting”? Heldur blátt ljós fyrir mér vöku? Hvernig myndast flökt? Hvað er “constant light output”? Gera LED ljós Trump appelsínugulan? Hvaða Watt á LED peru á ég að velja eða hversu mörg lúmen? Hvaða ljóslit á ég að velja í rými? Hvernig sjáum við ljós? Hvað er TM-30-15? Hvernig dimma ég LED? Hvað er IoT? Er LED framtíðarljósgjafinn?

[MEIRA HÉR](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/led-lysing)

![LED lýsing](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/16560d5c-e6f1-4f74-a3df-9b502735f56c)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/led-lysing
