---
title: "Laust starf Verkefnastjóra við ákvæðisgrunn rafiðnaðarins"
description: "RAFMENNT leitar að lausnarmiðuðum verkefnastjóra til starfa við ákvæðisgrunn rafiðnaðarins auk annarra starfa tengd endurmenntun félagsmanna."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/laust-starf-verkefnastjora-vid-akvaedisgrunn-rafidnadarins"
---

# Laust starf Verkefnastjóra við ákvæðisgrunn rafiðnaðarins

24. ágúst 2022

RAFMENNT leitar að lausnarmiðuðum verkefnastjóra til starfa við ákvæðisgrunn rafiðnaðarins auk annarra starfa tengd endurmenntun félagsmanna.

**RAFMENNT leitar að lausnarmiðuðum verkefnastjóra til starfa við ákvæðisgrunn**
**rafiðnaðarins auk annarra starfa tengd endurmenntun félagsmanna.**

**Starfssvið**

- Þjónusta ákvæðisgrunn rafiðnaðarins
- Samskipti við notendur
- Þróun og nýsköpun á ákvæðisvinnugrunni
    og öðrum þáttum sem tengjast
    endur- og símenntun
- Handleiðsla og kennsla
- Verkefni tengd gæðamálum

**Hæfniskröfur**

- Þekking á ákvæðisvinnu og
    ákvæðisvinnugrunni rafiðna
- Þekking á tilboðsgerð og iðnrekstri
- Þekking á endur- og símenntun
- Þekking á gæðakerfum og gæðastjórnun
- Skipulagshæfni og fumkvæði í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Góð samskiptahæfni
- Góð almenn tölvukunnátta og góð Excel þekking
- Gott vald á íslensku og ensku í tali og ritun

**Menntunarkröfur**

- Sveinspróf í rafiðngrein
- Meistarabréf og/eða önnur
    framhaldsmenntun í rafiðngreinum
    er kostur
- Kennsluréttindi er kostur

RAFMENNT hefur það hlutverk að bjóða fræðslu og styðja fræðslutengd verkefni með það að markmiði að uppfylla fræðsluþörf á sviði rafiðnaðar og svara þannig þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma.
Hjá RAFMENNT starfa tíu starfsmenn við fjölbreytt störf sem snúa að menntun og endurmenntun félagsmanna.

Umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra sem veitir nánari upplýsingar um starfið á netfangið **thor(hjá)rafmennt.is.**
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

**Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2022**
**Miðað er við að nýr starfsmaður hefji störf í síðasta lagi 1. janúar**

![Laust starf Verkefnastjóra við ákvæðisgrunn rafiðnaðarins](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/377e614d-cbc3-4e23-8f8d-f6f5273d2bd7)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/laust-starf-verkefnastjora-vid-akvaedisgrunn-rafidnadarins
