---
title: "Nýsköpun: Kynning á NCI Agency"
description: "Íslenskum hátæknifyrirtækjum er boðið til morgunverðarfundar í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 9. maí nk. kl. 8.30 þar sem kynntir verða möguleikar á að selja vörur og þjónustu og bjóða í verkefni…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/kynning-a-nci-agency"
---

# Nýsköpun: Kynning á NCI Agency

7. maí 2019

Íslenskum hátæknifyrirtækjum er boðið til morgunverðarfundar í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 9. maí nk. kl. 8.30 þar sem kynntir verða möguleikar á að selja vörur og þjónustu og bjóða í verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóðanna. Sama dag kl 12:30 verður haldinn kynningafundur um atvinnumöguleika fyrir íslenska ríkisborgara hjá NCI Agency í Víkingasal (4&5) Hótel Reykjavík Natura.

Fimmtudaginn 9. maí nk. kl. 8.30 bjóða Utanríkisráðuneytið, Landhelgisgæsla Íslands, Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa í samvinnu við Fjarskipta- og upplýsingatæknistofnun Atlantshafsbandalagsins (NCI Agency) íslenskum hátæknifyrirtækjum til morgunverðarfundar þar sem kynntir verða möguleikar á að selja vörur og þjónustu og bjóða í verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóðanna.

Fundurinn fer fram í utanríkisráðuneytinu að Rauðarárstíg 25, 105 Rvk.

Sama dag kl 12:30 bjóða Fjarskipta- og upplýsingatæknistofnun Atlantshafsbandalagsins (NCI Agency) í samvinnu við utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslu Íslands til kynningarfundar fyrir verk- og tæknimenntaða sérfræðinga þar sem kynntir verða atvinnumöguleikar fyrir íslenska ríkisborgara hjá NCI Agency.

Fundurinn fer fram í Víkingasal (4&5) á Hótel Reykjavík Natura.

Við hvetjum rafiðnaðarfólk til að kynna sér málið, [nánar í frétt hér](https://www.si.is/frettasafn/islensk-hataeknifyrirtaeki-fa-kynningu-a-nci-agency)!

![Nýsköpun: Kynning á NCI Agency](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/bd193e17-f754-44ff-8373-90d1e4cedad1)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/kynning-a-nci-agency
