---
title: "Kvöldfyrirlestur: Þróun farsímatækninnar"
description: "Farsímatæknin skoðuð allt frá fyrstu kynslóð farsíma og svo er þróunin rakin fram á okkar dag og næstu mögulegu skref skoðuð"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/kvoldfyrirlestur-throun-farsimataekninnar"
---

# Kvöldfyrirlestur: Þróun farsímatækninnar

30. janúar 2017

Farsímatæknin skoðuð allt frá fyrstu kynslóð farsíma og svo er þróunin rakin fram á okkar dag og næstu mögulegu skref skoðuð

Fyrsta kynslóð farsíma kom fram fyrir nærri 40 árum. NMT kerfið var 1. kynslóðar kerfi sem byggðist á hliðrænni tækni. Önnur kynslóðin byggðist á stafrænni tækni og hefur þróun farsímans síðan hún kom á sjónarsviðið verið með ólíkindum. Farið verður yfir helstu þætti stafrænnar farsímatækni, uppskiptingu þjónustusvæða í sellur, mótunar- og kóðunartækni. Kynntar verða nýjungar í loftnetatækni sem nefndar eru MIMO (Multiple Input Multiple Output). Eiginleikar kynslóðanna verða raktir og að lokum verða vangaveltur um fimmtu kynslóðina sem kemur á sjónarsviðið á þriðja áratugnum.

**Fyrirlesari:** Sæmundur Þorsteinsson verkfræðingur frá Háskóla Íslands.

**Fundartími:** Miðvikudagur 25.janúar 2017 kl.20:00 - 22:00.

**Fundarstaður:** Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð

[Video](https://www.youtube-nocookie.com/embed/5vu9aNTZYCU)

![Kvöldfyrirlestur: Þróun farsímatækninnar](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c42342ac-f809-4e33-a205-aa1ec6adb763)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/kvoldfyrirlestur-throun-farsimataekninnar
