---
title: "Kvikmyndaskólinn í nýju húsnæði og námið staðfest á efsta þrepi framhaldsskólastigs"
description: "Tvenn stór tímamót urðu hjá Kvikmyndaskólanum í september. Mennta- og barnamálaráðuneytið staðfesti að námskrá skólans uppfyllir skilyrði laga um framhaldsskóla og aðalnámskrár, og ný 1.300 fermetra…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/kvikmyndaskolinn-i-nyju-husnaedi-og-namid-stadfest-a-efsta-threpi-framhaldsskolastigs"
---

# Kvikmyndaskólinn í nýju húsnæði og námið staðfest á efsta þrepi framhaldsskólastigs

25. september 2026

Tvenn stór tímamót urðu hjá Kvikmyndaskólanum í september. Mennta- og barnamálaráðuneytið staðfesti að námskrá skólans uppfyllir skilyrði laga um framhaldsskóla og aðalnámskrár, og ný 1.300 fermetra aðstaða skólans að Vatnagörðum 4 var formlega vígð miðvikudaginn 23. september.

Staðfesting ráðuneytisins barst 9. september og með henni er kvikmyndanám við skólann viðurkennt á efsta þrepi framhaldsskólastigs. Námið er 120 eininga bókleg og verkleg listnámsbraut þar sem nemendur velja strax í upphafi eitt af þremur kjörsviðum: kvikmyndagerð, kvikmyndatækni eða leiklist fyrir framan myndavél.

Nýja aðstaðan er í húsi Stúdíós Sýrlands og hönnuð frá grunni fyrir kvikmyndanám, byggð á áratuga reynslu Sýrlands af framleiðslu. Þar eru þrjú kennslustúdíó, bíósalur, klippisvítur og kennslustofur af ýmsum stærðum. Fjöldi gesta úr kvikmyndaiðnaðinum og frá samstarfsaðilum mætti á vígsluna og skoðaði aðstöðuna.

Tæpt eitt og hálft ár er síðan Rafmennt tók við rekstri skólans. Í dag stunda tæplega 60 nemendur nám við skólann og samningur heimilar allt að 90.

*„Þetta eru tímamót fyrir kvikmyndanám á Íslandi. Við höfum nú bæði viðurkennda námsbraut og aðstöðu sem stenst samanburð við það besta. Við erum þakklát ráðuneytinu, Stúdíó Sýrlandi og kvikmyndaiðnaðinum fyrir stuðninginn,“* segir Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar.

**Umfjöllun í fjölmiðlum**

Fjölmiðlar fjölluðu um tímamótin:

- **RÚV, kvöldfréttir:**[Kvikmyndaskólinn í nýtt húsnæði](https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/bfblqe/kvikmyndaskolinn-i-nytt-husnaedi)
- **Bylgjan, Reykjavík síðdegis:**[Ný aðstaða Kvikmyndaskólans vígð í dag – viðtal við Þór Pálsson](https://www.visir.is/k/a3a9e50f-e844-4fd1-a364-02889c2d34b8-1790187415523/ny-adstada-kvikmyndaskolans-vigd-i-dag)
- **mbl.is:**[Kvikmyndanám nú á efsta þrepi framhaldsskólastigs](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/09/24/kvikmyndanam_nu_a_efsta_threpi_framhaldsskolastigs/)

Kynntu þér námið á [kvikmyndaskolinn.is](https://www.kvikmyndaskolinn.is/)

![Kvikmyndaskólinn í nýju húsnæði og námið staðfest á efsta þrepi framhaldsskólastigs](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/d62d3f52-db6d-43f5-b4c9-8f8b8e881f81)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/kvikmyndaskolinn-i-nyju-husnaedi-og-namid-stadfest-a-efsta-threpi-framhaldsskolastigs
