---
title: "Nýtt í haust: IST151 / Tvö ný námskeið"
description: "Nýr staðall ÍST-151 kemur út nú í sumar sem fjallar um fjarkiptalagnir heimilannna, þ.m.t. sjónvarp, Internet, síma o.fl. Staðallinn skilgreinir hvernig ganga skal frá lögnum, þær mældar og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/ist151-stadallinn-tvo-ny-namskeid"
---

# Nýtt í haust: IST151 / Tvö ný námskeið

15. mars 2016

Nýr staðall ÍST-151 kemur út nú í sumar sem fjallar um fjarkiptalagnir heimilannna, þ.m.t. sjónvarp, Internet, síma o.fl. Staðallinn skilgreinir hvernig ganga skal frá lögnum, þær mældar og niðurstöður skráðar í mælingarskýrslu. Rafiðnaðarskólinn býður upp á tvö ný námskeið um staðalinn.

Nýr staðall ÍST-151 kemur út nú í sumar sem fjallar um fjarkiptalagnir heimilannna, þ.m.t. sjónvarp, Internet, síma o.fl. Staðallinn skilgreinir hvernig ganga skal frá lögnum, þær mældar og niðurstöður skráðar í mælingarskýrslu. Rafiðnaðarskólinn býður upp á tvö ný námskeið um staðalinn. Rafiðnaðarskólinn býður næsta haugs upp á tvö ný námskeið um staðalinn:

**1. ÍST151 - Innanhúss fjarskiptakerfi**
Þetta er námskeið sem er ætlað rafiðnaðarmönnum sem vinna við fjarskiptalagnir í húsum. Á námskeiðinu er leitast við að skýra fyrir þátttakendum mismunandi valmöguleika sem í boði eru varðandi fjarskiptaflutning innanhúss með strengjum (netstrengjum, coax, ljósleiðara) eða þráðlaust og kynna kosti þeirra og galla, til að gera þátttakendur færa um að vera ráðgefandi fyrir viðskiptavini sína í fjarskiptamálum. Einnig er gerð grein fyrir hönnun á dreifikerfum fyrir stærri byggingar og framkvæmdar mælingar og stillingar á búnaði fyrir slík kerfi.
Á þessu námskeiði er ÍST151 staðallinn kynntur og unnið er mælingaverkefni sem þjálfa þátttakendur í að skila af sér skýslu að loknu verki, samkvæmt forskrift staðalsins.

*Þetta er 3 daga námskeið.*

**2. ÍST151 - Hönnun fjarskiptalagna**
Þetta er námskeið sem er ætlað lagna- og kerfishönnuðum, sölumönnum á raflagnaefni og fyrir stjórnendum verka af þessu tagi. Á námskeiðinu er leitast við að skýra fyrir þátttakendum mismunandi valmöguleika sem í boði eru varðandi fjarskiptaflutning innanhúss með strengjum (netstrengjum, coax, ljósleiðara) eða þráðlaust og kynna kosti þeirra og galla, til að gera þátttakendur færa um að vera ráðgefandi fyrir viðskiptavini sína í fjarskiptamálum. Einnig er gerð grein fyrir hönnun á dreifikerfum fyrir stærri byggingar.
Á þessu námskeiði er reglur Póst-og fjarskiptastofnunar um verndun fjarskipta kynntar, farið ýtarlega í staðalinn ÍST151 og lögð áhersla á gerð lokaskýrslu fyrir vekið, samkvæmt forskrift staðalsins.

*Þetta er 1 dags námskeið.*

![Nýtt í haust: IST151 / Tvö ný námskeið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/cbd14df9-7c17-4d52-b892-f74ef769dfd1)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/ist151-stadallinn-tvo-ny-namskeid
