---
title: "Hugað að starfslokum"
description: "Það er í mörg horn að líta þegar hugað er að starfslokum eftir áratuga veru á vinnumarkaði. Kynntu þér málin og skráðu þig á þetta námskeið."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/hugad-ad-starfslokum"
---

# Hugað að starfslokum

2. maí 2019

Það er í mörg horn að líta þegar hugað er að starfslokum eftir áratuga veru á vinnumarkaði. Kynntu þér málin og skráðu þig á þetta námskeið.

**Það er FULLT á námskeiðið í kvöld ( 6. maí) en bjóðum upp á** **ANNAÐ NÁMSKEIÐ Á MORGUN, 7. maí kl 17-20****!**

Það er í mörg horn að líta þegar hugað er að starfslokum eftir áratuga veru á vinnumarkaði. Á námskeiðinu verður m.a. rætt um hvað tekur við þegar fólk hættir störfum á vinnumarkaði, áunnin réttindi og töku lífeyris sem og samspil almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóðskerfisins.

Námskeiðið er opið félagsmönnum RSÍ og SART og mökum þeirra og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Það á erindi við alla sem eru farnir að huga að þessum málum. Við biðjum fólk þó um að skrá sig með því að smella á skráningarhnappinn svo við vitum hvað við eigum von á mörgum.

Námskeiðið verður haldið mánudaginn 6. maí nk. kl 17-20 í húsakynnum RAFMENNTAR að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík, stofu 13 á 1. hæð.

Leiðbeinandi verður Guðmundur Hilmarsson, ASÍ.

Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér fartölvu/spjaldtölvu.

[Skráning fer fram hér!](https://www.rafmennt.is/skraning/hopur/hugad-ad-starfslokum-2/2615)

![Hugað að starfslokum](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/ab409bbd-f4c9-43a7-8e70-9db6b2fa9b8c)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/hugad-ad-starfslokum
