---
title: "Hlaðborð spennandi námskeiða!"
description: "Við ljúkum vorönninni með stæl og bjóðum fimm spennandi námskeið í maí. Kynntu þér málið nánar og sjáðu hvort eitthvert þeirra henti þér."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/hladbord-spennandi-namskeida"
---

# Hlaðborð spennandi námskeiða!

2. maí 2019

Við ljúkum vorönninni með stæl og bjóðum fimm spennandi námskeið í maí. Kynntu þér málið nánar og sjáðu hvort eitthvert þeirra henti þér.

Fimmtudaginn, 9. maí nk., hefst námskeiðið [raflagnatækni](https://www.rafmennt.is/nam/namskeid/index/meistaranam-rafvirkj/raflagnataekni-2) þar sem fjallað verður m.a. um helstu störf rafvirkjameistarans við mannvirkjagerð. Námskeiðið stendur yfir í 3 daga (9.-11. maí kl 8:30-18:00).

Föstudaginn, 10. maí nk., er námskeiðið [IP myndavélar](https://www.rafmennt.is/nam/namskeid/index/oll-namskeid/ip-myndavelar) á dagskrá, sem er heils dags námskeið (kl. 8:30-17:00)

Miðvikudaginn 15. maí kl 17-21 ætlum við að vera með námskeiðið [Rafbílar - íhluti og virkni](https://www.rafmennt.is/nam/namskeid/index/oll-namskeid/rafbilar-ihlutir-og-virkni-2) og föstudaginn 17. maí verður námskeiðið [Úttekt eigin verka](https://www.rafmennt.is/nam/namskeid/index/oll-namskeid/uttekt-eigin-verka-4) á dagskrá kl. 13-17.

Föstudaginn, 24. maí nk., (ath var fært frá 10. maí) hefst 2ja daga [KNX A](https://www.rafmennt.is/nam/namskeid/index/meistaranam-rafvirkj/knx-a) námskeið (24.-25. maí kl 8:30-17:00). Námskeiðið veitir innsýn í KNX hússtjórnarkerfi og er fyrri hlutinn af viðurkenndu "Basic" námskeiði sem eru vottuð af KNX samtökunum.

Kynntu þér málið nánar á vefnum okkar og athugaðu hvort eitthvert þessara námskeiða henti þér. Námskeiðin eru öll hluti af meistaraskóla rafvirkja en eru einnig opin sem endurmenntunarnámskeið.

![Hlaðborð spennandi námskeiða!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/67fd006e-bc38-4c57-872d-453d2536393e)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/hladbord-spennandi-namskeida
