---
title: "Heimsókn frá mennta- og barnamálaráðherra"
description: "Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, kom í heimsókn á dögunum til okkar en Rafmennt sér um umsýslu sveinsprófa í rafiðngreinum. Ráðherra fékk kynningu á starfsemi Rafmenntar og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/heimsokn-fra-mennta-og-barnamalaradherra"
---

# Heimsókn frá mennta- og barnamálaráðherra

18. febrúar 2025

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, kom í heimsókn á dögunum til okkar en Rafmennt sér um umsýslu sveinsprófa í rafiðngreinum. Ráðherra fékk kynningu á starfsemi Rafmenntar og hitti nemendur.

Áhugi á námi í rafiðngreinum hefur aukist verulega undanfarin ár, og sífellt fleiri ljúka sveinsprófi. Til samanburðar þreyttu 182 manns sveinspróf í rafvirkjun árið 2020, en árið 2023 var fjöldinn kominn upp í 375.

Heimsókn ráðherra undirstrikar mikilvægi rafiðnnáms og þess hlutverks sem Rafmennt gegnir í að tryggja gæði og þróun fagmenntunar í greininni.

![Heimsókn frá mennta- og barnamálaráðherra](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/4da3705e-dd9d-4a49-bb22-b302f28b3cc9)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/heimsokn-fra-mennta-og-barnamalaradherra
