---
title: "Hádegisfundur um stöðu kvenna í karllægum greinum"
description: "Rúmlega helmingur kvenna í karllægum greinum innan RSÍ og VM hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum. Niðurstöður könnunar Vörðu verða kynntar á hádegisfundi…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/hadegisfundur-um-stodu-kvenna-i-karllaegum-greinum"
---

# Hádegisfundur um stöðu kvenna í karllægum greinum

19. október 2026

Rúmlega helmingur kvenna í karllægum greinum innan RSÍ og VM hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum. Niðurstöður könnunar Vörðu verða kynntar á hádegisfundi miðvikudaginn 21. október.

**Brýnt ákall um aðgerðir**

Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins gerði könnun fyrir Rafiðnaðarsamband Íslands á stöðu kvenna í karllægum greinum. Hún var lögð fyrir konur í aðildarfélögum RSÍ og VM. Niðurstöðurnar eru sláandi: 51% kvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni, 66% hafa fengið neikvæðar athugasemdir í vinnu og 27% hafa orðið fyrir einelti á vinnustað. Þá segjast 32% hafa verið særð eða niðurlægð fyrir framan aðra og 39% telja faglegt álit sitt hundsað.

Könnunin var kynnt sambandsstjórnarfólki á fundi í vor. Þar var unnin vinnustofa um hvað RSÍ, vinnustaðurinn og hver og einn getur gert. Niðurstaða hennar var ákall um að stíga inn og gera eitthvað. Ein tillagan, frá hópi sem var eingöngu skipaður körlum, var að kynna niðurstöðurnar vel.

**Hádegisfundur 21. október**

Nú gefst félagsfólki tækifæri til að heyra niðurstöðurnar milliliðalaust. Kristín Heba frá Vörðu kynnir skýrsluna á fundi á Stórhöfða 31. Allt félagsfólk Fagfélaganna (RSÍ, VM, MATVÍS, FFÍ og SVG) er eindregið hvatt til að mæta.

- **Hvar:** Stórhöfða 31, gengið inn Grafarvogsmegin (neðan við húsið)
- **Hvenær:** miðvikudaginn 21. október 2026, fundinum lýkur kl. 12:50
- **Hádegisverður:** í boði fyrir þau sem mæta á staðinn
- **Fjarfundur:** í boði, skráning nauðsynleg
- **Skráning:** rennur út í dag, 19. október, kl. 16

[Skráning á hádegisfundinn](https://fagfelogin.is/hadegisfundur-21-oktober-2026-stada-kvenna-i-karllaegum-greinum/)

**Meira um verkefnið**

Verkefnið ber heitið „Stígum inn“ og þar er hægt að kynna sér niðurstöðurnar, jafnréttisstefnu RSÍ og skýrslu Vörðu: [rafis.is/stigum-inn](http://rafis.is/stigum-inn)

Sambandsstjórnarfundur RSÍ skoraði á alla sem starfa í karllægum greinum að virða kvenkyns samstarfsfólk og fordæma áreitni. Konur eiga rétt á því að vinna störf sín án óeðlilegra athugasemda og áreitis.

![51% kvenna í karllægum greinum innan RSÍ og VM hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu.](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/00b1fc9b-6899-4ce1-bcc2-1f178bc044a0)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/hadegisfundur-um-stodu-kvenna-i-karllaegum-greinum
