---
title: "Hádegisfundur um gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi"
description: "Rafmennt og Iðan fræðslusetur bjóða til hádegisfundar miðvikudaginn 14. október þar sem spurt verður hvort vottað gæðakerfi sé fyrirhafnarinnar virði fyrir verktaka- og iðnfyrirtæki."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/hadegisfundur-um-gaedastjornun-og-iso-9001-i-verktakastarfsemi"
---

# Hádegisfundur um gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi

30. september 2026

Rafmennt og Iðan fræðslusetur bjóða til hádegisfundar miðvikudaginn 14. október þar sem spurt verður hvort vottað gæðakerfi sé fyrirhafnarinnar virði fyrir verktaka- og iðnfyrirtæki.

Gott gæðakerfi getur stutt við faglegri rekstur, aukið gæði og ýtt undir stöðugar umbætur. Það kostar þó sitt, því innleiðing og viðhald kalla á þátttöku stjórnenda, tíma starfsfólks og fjárfestingu. Á fundinum verður rætt opinskátt hvort ávinningurinn standi undir kostnaðinum og hvernig fyrirtæki geta tryggt að kerfið nýtist í raun við stjórnun en verði ekki bara skjöl í möppu.

Fundurinn hentar stjórnendum, gæðastjórum og öðrum sem koma að rekstri verktaka- og iðnfyrirtækja.

**Fyrirlesarar**

Eyjólfur Bjarnason er byggingatæknifræðingur, menntaður í Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.

Sigrún Melax er verkfræðingur og hefur unnið við gæðastjórnun um árabil, meðal annars við uppsetningu, innleiðingu og rekstur gæðakerfa og virkniskoðanir.

**Hagnýtar upplýsingar**

**Hvenær:** Miðvikudaginn 14. október kl. 12:00–13:00
**Hvar:** Rafmennt, Stórhöfða 27, 1. hæð
**Verð:** Ókeypis og léttar veitingar í boði

Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að **[skrá sig](https://rsvp.rafmennt.net/66394n2a)**.

![Hádegisfundur um gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/d9c28c3c-40db-4d25-b6ff-b5da02350cde)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/hadegisfundur-um-gaedastjornun-og-iso-9001-i-verktakastarfsemi
