---
title: "Grunnnámskeið vinnuvéla komið á dagskrá"
description: "Grunnnámskeið vinnuvéla er komið á dagskrá hjá RAFMENNT í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/grunnnamskeid-vinnuvela"
---

# Grunnnámskeið vinnuvéla komið á dagskrá

1. mars 2022

Grunnnámskeið vinnuvéla er komið á dagskrá hjá RAFMENNT í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.

Grunnnámskeið vinnuvéla er komið á dagskrá hjá RAFMENNT í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.

**Þátttakendur geta byrjað á námskeiðinu þegar þeir vilja og lært þegar þeir vilja og hægt er að horfa á námsefnið eins oft og hver vill. Einnig er hægt að leysa verkefni eins oft og hver vill.**

Grunnnámskeið vinnuvéla er stundum kallað “**Stóra námskeiðið**”. Námskeiðið veitir bókleg réttindi á allar stærðir og gerðir vinnuvéla sem eru réttindaskyldar á Íslandi. Íslensk réttindi eru viðurkennd víðast hvar í Evrópu.

Námskeiðið fer **99% fram í fjarnámi**, aðeins lokaprófið er í kennslustofu hjá Vinnuverndarskólanum, á vinnustöðum eða í fjarnámsmiðstöð eftir samkomulagi.
Allir sem eru orðnir 16 ára geta tekið námskeiðið en til að fá fullgild vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.

Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, ítarefni, verkefnum sem eru krossaspurningar og krossaprófum. Það þarf að leysa verkefnin og standast prófin til geta haldið áfram á námskeiðinu.

[Skráning](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/gunnnamskeid-vinnuvela)

![Grunnnámskeið vinnuvéla komið á dagskrá](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/6396d6be-39df-4503-94f6-18acb0a76b1f)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/grunnnamskeid-vinnuvela
