---
title: "Glænýtt námskeið!"
description: "Grunnnámskeið í Exel í boði í október"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/glaenytt-namskeid"
---

# Glænýtt námskeið!

23. september 2019

Grunnnámskeið í Exel í boði í október

Exel er gott tól til að vinna með en þá þarf að hafa grunnþekkingu á hvað hægt er að gera í forritinu.

Rafmennt er að fara af stað með glænýtt grunnnámskeið í Exel þar sem farið verður yfir innslátt gagna, forsnið reita, grunnreikniaðgerðir, tilvísanir og afritun, ásamt því að bæta inn línum, dálkum og vinnublöðum.

Í lok námskeiðs á þátttakandi að geta unnið með töflur, formúlur og myndrit. Þátttakandi á einnig að geta bætt við þekkingu sína með notkun innbyggðrar hjálpar Excel og netsins.

[Skráðu þig hér!](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/grunnnamskeid-excel)

![Glænýtt námskeið!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/8d487c86-a0e3-4bb5-8d9c-4fd27aa4cd26)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/glaenytt-namskeid
