---
title: "Gjöf til kennslu í netöryggi 🛜🔒"
description: "Rafmennt hefur fengið afhenta Check Point eldveggi að gjöf frá fyrirtækinu H.Árnason ehf. Hjörtur Árnason, eigandi fyrirtækisins, afhenti búnaðinn sem mun nýtast við kennslu í netöryggi hjá Rafmennt."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/gjof-til-kennslu-i-netoryggi"
---

# Gjöf til kennslu í netöryggi 🛜🔒

20. febrúar 2025

Rafmennt hefur fengið afhenta Check Point eldveggi að gjöf frá fyrirtækinu H.Árnason ehf. Hjörtur Árnason, eigandi fyrirtækisins, afhenti búnaðinn sem mun nýtast við kennslu í netöryggi hjá Rafmennt.

Rafmennt hefur fengið afhenta Check Point eldveggi að gjöf frá fyrirtækinu [H.Árnason ehf.](https://www.harnason.is/) Hjörtur Árnason, eigandi fyrirtækisins, afhenti búnaðinn sem mun nýtast við kennslu í netöryggi.

Check Point eldveggir eru [NGFW (Next-Generation Firewall)](https://en.wikipedia.org/wiki/Next-generation_firewall) eldveggir sem bjóða upp á háþróaðar varnir gegn netógnum. Hafa þessir eldveggir reynst koma mjög vel út úr öryggisprófunum og hlotið viðurkenningu fyrir framúrskarandi frammistöðu í öryggisprófunum greiningaraðila, þar sem þeir náðu 99,8% hindrunartíðni gegn ógnum samkvæmt [Miercom Firewall Security Benchmark Report](https://miercom.com/ngfw/). Hægt er að stilla þá til að greina og stöðva innbrotstilraunir í rauntíma(IPS), stjórna aðgangi að forritum og koma í veg fyrir notkun óæskilegra hugbúnaðar, keyrir hermi fyrir grunsamlegar skráa í öruggu umhverfi og hindra núll-dags árásir (Zero-Day Protection).

Þessi gjöf styrkir kennslu í netöryggi hjá Rafmennt og veitir nemendum dýrmæt tækifæri til að vinna með raunverulegan netöryggisbúnað. Rafmennt þakkar H.Árnason ehf kærlega fyrir stuðninginn við menntun í upplýsingatækni.

![Gjöf til kennslu í netöryggi 🛜🔒](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/8813db36-977d-44c9-af0a-71b9692840f4)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/gjof-til-kennslu-i-netoryggi
