---
title: "Gildi Rafiðnaðarskólans: Þekking - Þróun - Færni"
description: "Þekking - Þróun - Færni. Þekking er undirstaða framfara. Í starfi Rafiðanaðarskólans er lögð áhersla á að uppfylla þekkingarþörf nemenda til framfara í starfi. Lögð er áhersla á að nemendur geti…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/gildi-rafidnadarskolans-thekking-throun-faerni"
---

# Gildi Rafiðnaðarskólans: Þekking - Þróun - Færni

15. desember 2015

Þekking - Þróun - Færni. Þekking er undirstaða framfara. Í starfi Rafiðanaðarskólans er lögð áhersla á að uppfylla þekkingarþörf nemenda til framfara í starfi. Lögð er áhersla á að nemendur geti tryggt faglega grunnþekkingu auk sérhæfðar þekkingar sem nauðsynleg er til að halda faglegri færin í starfi í síbreytilegum tækniheimi.

**Þekking** - Þekking er undirstaða framfara. Í starfi Rafiðanaðarskólans er lögð áhersla á að uppfylla þekkingarþörf nemenda til framfara í starfi. Lögð er áhersla á að nemendur geti tryggt faglega grunnþekkingu auk sérhæfðar þekkingar sem nauðsynleg er til að halda faglegri færin í starfi í síbreytilegum tækniheimi.

**Þróun** - Þróun með aukinni þekkingu er markmið sem Rafiðnaðarskólinn vill stuðla að. Tæknifyrirtæki verða að vera í stöðugri þróun í erfiðu samkeppnisumhverfi nútímans. Með því að starfsmenn geti sótt sér nýja þekkingu í Rafiðanaðarskólann, stuðlar skólinn að því að fyrirtækin ná að þróa starfsemi sína og ná bættum árangri.

**Færni** – Markmið Rafiðnaðarskólans er að auka færni nemenda til aukinnar þróunar. Aukinni þekkingu er í Rafiðnaðarskólanum fylgt eftir með verklegri þjálfun nemenda í nýrri tækni til að auka færni þeirra í starfi. Aukin færni starfsfólks auðveldar jákvæða þróun fyrirtækisins.

![Gildi Rafiðnaðarskólans: Þekking - Þróun - Færni](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/f4ad1015-9e15-4435-bd96-a67f420f7574)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/gildi-rafidnadarskolans-thekking-throun-faerni
