---
title: "Bransadagurinn 2024 🎚️🎥🎤"
description: "Fjölmenni var á fyrsta Bransadegi tæknifólks í Hörpu á mánudag. 20 fyrirlesarar fluttu erindi um allt frá geðheilsu í iðnaðinum til gervigreindar og er mál fólks að gríðarlega vel hafi tekist til og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fyrsti-bransadagur-taeknifolks"
---

# Bransadagurinn 2024 🎚️🎥🎤

10. janúar 2024

Fjölmenni var á fyrsta Bransadegi tæknifólks í Hörpu á mánudag. 20 fyrirlesarar fluttu erindi um allt frá geðheilsu í iðnaðinum til gervigreindar og er mál fólks að gríðarlega vel hafi tekist til og dagurinn sé kominn til að vera. Glæsilegt sýningarsvæði var auk þess á staðnum þar sem samstarfsaðilar dagsins auk skipuleggjenda settu upp bása til að kynna vöru og þjónustu. Ari Eldjárn steig síðan á stokk í kokteilmóttöku í lok dags og kláraði vel heppnaðan dag með glensi og glans.

![Bransadagurinn 2024 🎚️🎥🎤](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e99ad5a7-fa57-404c-bcc5-27780cfc0d10)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fyrsti-bransadagur-taeknifolks
