---
title: "Fyrsta námskeið Öryggisskólans komið á dagskrá!"
description: "Fyrsta námskeið Öryggisskólans er komið á dagskrá. Það fer fram í kennslustofu á Stórhöfða 27 og hefst þann 20.febrúar."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fyrsta-namskeid-oryggisskolans-komid-a-dagskra"
---

# Fyrsta námskeið Öryggisskólans komið á dagskrá!

29. janúar 2026

Fyrsta námskeið Öryggisskólans er komið á dagskrá. Það fer fram í kennslustofu á Stórhöfða 27 og hefst þann 20.febrúar.

Fyrsta námskeið Öryggisskólans er komið á dagskrá. Það fer fram í kennslustofu á Stórhöfða 27 og hefst þann **20.febrúar**.

Námskeiðið, [Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum](https://www.oryggisskolinn.is/namskeid/aukid-oryggi-bygginga-mannvirkjagreinum), er hugsað fyrir stjórnendur, verkstjóra, verkefnastjóra og aðra lykilaðila sem koma að skipulagi og stjórnun vinnustaða í þessum greinum. Á námskeiðinu er vel farið yfir nýja og hagnýta nálgun í öryggisfræðslu sem styður teymi við að skapa vinnuumhverfi þar sem traust, gagnsæ samskipti og stöðugur lærdómur eru í forgrunni. Mikil áhersla er lögð á raunhæfar aðferðir sem þátttakendur geta innleitt strax í sínum daglegu störfum.

Skráning fer fram beint á nýjum vef[Öryggisskólans,](https://www.oryggisskolinn.is/) þar sem einnig er að finna fræðsluefni. Vefurinn gegnir lykilhlutverki sem miðstöð upplýsinga um öryggis- og vinnuverndarnámskeið fyrir íslenskan iðnað.

Þar verður að finna skýrar upplýsingar um komandi námskeið, skráningarferli, markmið skólans og hvernig fræðsla er uppbyggð. ⁠Öryggisskólinn er í sameiginlegri eigu Iðunar fræðsluseturs og Rafmenntar, og stefnir að því að efla öryggismenningu og draga úr vinnuslysum innan iðnaðarins.

Á komandi misserum mun skólinn bjóða fleiri námskeið sem byggja ofan á þessa grunnnálgun við að efla öryggismenningu á vinnustöðum.

![Fyrsta námskeið Öryggisskólans komið á dagskrá!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/24fded21-2605-4dd0-aab1-af87302e08c6)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fyrsta-namskeid-oryggisskolans-komid-a-dagskra
