---
title: "Háværð í fjölmiðlun (e. Loudness)"
description: "Rafiðnaðarskólinn gerir gangskör að fræðslu um háværð í fjöl- og margmiðlun"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fyrirlestrar-og-namskeid-um-havaerd-e-loudness"
---

# Háværð í fjölmiðlun (e. Loudness)

13. september 2017

Rafiðnaðarskólinn gerir gangskör að fræðslu um háværð í fjöl- og margmiðlun

**Í byrjun október bíður Rafiðnaðarskólinn upp á fræðslu um háværð (e. Loudness ) í fjölmiðlun og innleiðingu vinnulags og mæliaðferða byggða á R128 staðli EBU.**

Sumir fjölmiðlar á Íslandi eru farnir að gera kröfu um að allt efni sem þeim berst fari eftir þessum staðli og líkur eru á að formleg innleiðing á landsvísu hefjist innan skamms. Það er því mikilvægt að allir þeir sem að vinnslu og dreifingu efnis sem inniheldur hljóð hvort sem það er fyrir ljósvakamiðlana eða á netinu kunni skil á helstu forsendum háværðar í fjölmiðlun.

**Hádegisfyrirlestur**

3. október verður hádegisfyrirlestur þar sem helstu hugtök eru skýrð og rædd án þess að farið sé í tæknilegu hlið mála.

[Skráning er hér](http://www.raf.is/is/namskeid/fagnamskeid/fyrirlestur-um-takmorkun-havaerdar)

**Námskeið**

4., 5. og 6. október verður sama einsdags námskeiðið keyrt þrisvar sinnum svo allir sem vinna að vinnslu, útsendingu og annari dreifingu efnis hafi tækifæri á að taka þátt.

[Skráning er hér](http://www.raf.is/is/namskeid/fagnamskeid/loudness-namskeid-ebu-r128)

**Vinnustofa í samstarfi við RÚV**

7. október verður svo "workshop" í samstarfi við RÚV haldin í Stúdíó 12 hjá RÚV í Efstaleiti. Þar gefst þeim sem hljóðblanda efni fyrir dreifingu til fjölmiðla kostur á að prófa, ræða og skoða nánar þau verkfæri sem rætt hefur verið um á námskeiðinu dagana á undan.

[Skráning er hér](http://www.raf.is/is/namskeid/fagnamskeid/loudness-vinnustofa-samstarf-vid-ruv)

![Háværð í fjölmiðlun (e. Loudness)](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/617567aa-bebd-4954-aeb8-37a89ce491e2)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fyrirlestrar-og-namskeid-um-havaerd-e-loudness
