---
title: "Fræðslufundur um reyk- og brunavarnir 🧯"
description: "Rafmennt, Iðan og Reykjafell halda kynningarfyrirlestur í samstarfi við Firesafe um reyk- og brunvarnir, fimmtudaginn 14. mars kl. 11:30 - 13:00 í húsnæði Rafmenntar, Stórhöfða 27. Sérfræðingar frá…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-um-reyk-og-brunavarnir"
---

# Fræðslufundur um reyk- og brunavarnir 🧯

6. mars 2024

Rafmennt, Iðan og Reykjafell halda kynningarfyrirlestur í samstarfi við Firesafe um reyk- og brunvarnir, fimmtudaginn 14. mars kl. 11:30 - 13:00 í húsnæði Rafmenntar, Stórhöfða 27. Sérfræðingar frá Firesafe í Noregi munu vera með kynningu á reyk og brunaþéttingum, farið verður í lausnir, notkun þeirra og uppsetningu.

#### Rafmennt, Iðan og Reykjafell halda kynningarfyrirlestur í samstarfi við Firesafe um reyk- og brunavarnir, fimmtudaginn 14. mars kl. 11:30 - 13:00 í húsnæði Rafmenntar, Stórhöfða 27.

Sérfræðingar frá Firesafe í Noregi munu vera með kynningu á reyk og brunaþéttingum, farið verður í lausnir, notkun þeirra og uppsetningu.

Í lok kynningar verður sýnt dæmi um hvernig brunaþéttingar frá Firesafe virka, þegar eldur er borinn að vegg sem er útbúinn með þeim.

Firesafe var stofnað 1981 og hefur gríðarmikla reynslu í brunavörnum. Fyrirtækið býður upp á heildarlausnir fyrir brunavarnir í byggingum, skipaiðnaði og jarðgöngum, ásamt því að veita ráðgjöf, þjónustu og framsetningu reyk- og brunarvarna.

Veitingar verða í boði á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur!

[Hér](https://www.youtube.com/rafmennt/live) má sjá fundinn í heild sinni.

![Fræðslufundur um reyk- og brunavarnir 🧯](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/48770d31-cb1e-47f6-8355-934cea7e85c1)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-um-reyk-og-brunavarnir
