---
title: "Fræðslufundur um gervigreind 🤖"
description: "Rafmennt heldur örfyrirlestur um gervigreind, fimmtudaginn 21. mars kl 12:00 í húsnæði Rafmenntar, Stórhöfða 27. Örfyrirlestur um gervigreind, með áherslu á Copilot. Gervigreind er eitt af mest…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-um-gervigreind"
---

# Fræðslufundur um gervigreind 🤖

19. mars 2024

Rafmennt heldur örfyrirlestur um gervigreind, fimmtudaginn 21. mars kl 12:00 í húsnæði Rafmenntar, Stórhöfða 27. Örfyrirlestur um gervigreind, með áherslu á Copilot. Gervigreind er eitt af mest spennandi og vaxandi sviðum nútímanns í tölvunarfræði og vísindum.

Rafmennt heldur örfyrirlestur um gervigreind, fimmtudaginn 21. mars kl 12:00 í húsnæði Rafmenntar, Stórhöfða 27.

Örfyrirlestur um gervigreind, með áherslu á Copilot. Gervigreind er eitt af mest spennandi og vaxandi sviðum nútímanns í tölvunarfræði og vísindum. Í þessum fyrirlestri verður farið í kosti og galla gervigreindar, góðar venjur við notkun hennar og hvað skal varast. Einnig verður talað um reglugerð EU sem er í undirbúningi, siðareglur og stefnu gervigreindar.

Hjörtur Árnason, sérfræðingur mun sjá um fyrirlesturinn.

Hlekkur á streymi [hér.](https://www.youtube.com/rafmennt/live)

Veitingar verða í boði á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur!

![Fræðslufundur um gervigreind 🤖](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/57cc4669-588a-4400-ad77-c9c01b49a016)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-um-gervigreind
