---
title: "Fræðslufundur með stofnendum Home Assistant"
description: "Rafmennt, Open Home Foundation og Snjallingur bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir alla Home Assistant notendur og tækniáhugafólk!"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-med-stofnendum-home-assistant"
---

# Fræðslufundur með stofnendum Home Assistant

20. febrúar 2025

Rafmennt, Open Home Foundation og Snjallingur bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir alla Home Assistant notendur og tækniáhugafólk!

Rafmennt, Open Home Foundation [https://www.openhomefoundation.org](https://www.openhomefoundation.org/) og Snjallingur [https://snjallingur.is](https://snjallingur.is/) bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir alla Home Assistant notendur og tækniáhugafólk!

Viðburðurinn hefst tímanlega kl. 18:00 og stendur til 21:15 þann 24. febrúar nk. í húsi Rafmenntar - gengið inn Grafarvogsmeginn!
Stofnendur og kjarnateymi Home Assistant koma í heimsókn!
Þeir munu kynna framtíðarsýn sína, ræða þróun lausnarinnar og hitta íslenska notendur Home Assistant í afslöppuðu spjalli. Hvað er framundan fyrir Home Assistant?
 Hvernig getur íslensku stuðningurinn batnað?
 Gestir hafa tækifæri á segja frá sinni upplifun af kerfinu og sýna!

Dagskrá viðburðarins: **- 18:00 – Húsið opnar**
 Léttar veitingar í boði fyrir alla
 Óformleg spjall milli fundagesta og fyrirlesara.
**- 19:00 – Opnunarávarp: Paulus Schoutsen, stofnandi Home Assistant**
 Kynning á Open Home Foundation
 Hvernig Home Assistant hefur vaxið og orðið eitt stærsta verkefnið á GitHub
**- 19:45 – Home Assistant á íslenskum heimilum – sýnikennsla og reynslusögur**
 Þátttakendur eru hvattir til að kynna sín kerfi og hvernig þeir nýta Home Assistant
**- 20:15 – Home Assistant skilur íslensku**
 Home Assistant er eina snjallheimalausnin sem getur skilið íslensku
 Hvar stöndum við í dag og hvað þarf að gera til að bæta íslenskan stuðning?
**- 20:30 – Opin umræða og spjall**
 Tækifæri til að ræða, spyrja spurninga og tengjast öðrum áhugasömum
**- 21:15 – Viðburði lýkur**

Ekki missa af þessum frábæra viðburði! Skráning ekki nauðsynleg en hægt er að skoða viðburðinn [hér!](https://fb.me/e/GYNqmjfSQ)

Fundinum verður streymt í beinni frá kl. 18:00 og hægt er að fylgjast með streyminu [hér!](https://teams.microsoft.com/l/meetup-join/19%3ameeting_OWUyMWE2NmItZDM3ZS00M2VmLTk2ZDItODQ0MTg5MmFmMjFj%40thread.v2/0?context=%7b%22Tid%22%3a%225ab469a5-0b7c-468a-af99-c4684c3fa623%22%2c%22Oid%22%3a%22a4e94e94-f0e5-4c00-a4bb-04e6848253a2%22%7d)
Meeting ID funds er 373 044 005 806
Passcdoe fundar er Ve6SY2Cz

![Fræðslufundur með stofnendum Home Assistant](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c77ad93a-5428-4345-901d-a443d6ab1027)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-med-stofnendum-home-assistant
