---
title: "Fræðslufundur: Flökkustraumur og áhrif hans á mjólkurkýr"
description: "Hádegisfundur á Teams – Flökkustraumur í landbúnaði með áherslu á áhrif hans á mjólkurkýr. Fimmtudagur 15. janúar kl. 11:30–12:30."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-flokkustraumur-og-ahrif-hans-a-mjolkurkyr"
---

# Fræðslufundur: Flökkustraumur og áhrif hans á mjólkurkýr

9. janúar 2026

Hádegisfundur á Teams – Flökkustraumur í landbúnaði með áherslu á áhrif hans á mjólkurkýr. Fimmtudagur 15. janúar kl. 11:30–12:30.

**Hádegisfundur á Teams – Flökkustraumur í landbúnaði með áherslu á áhrif hans á mjólkurkýr**

**Fimmtudagur 15. janúar kl. 11:30–12:30**

Rafmennt, í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, býður félagsmönnum sínum á fróðlegan hádegisfund um flökkustraum í landbúnaðarbyggingum, með sérstakri áherslu á áhrif hans á mjólkurkýr.

**Flökkustraumur – áhrif á velferð og framleiðslu kúa**

Flökkustraumur getur víða valdið vandamálum í fjósum. Kýr eru mjög næmar fyrir spennumun og í nágrannalöndunum er lögð mikil áhersla á að lesa í atferli kúa til að greina möguleg vandamál. Einkenni eins og vanlíðan, pirringur og forðun sýna sig oft þar sem flökkustraumur getur verið orsakavaldurinn. Það getur verið í kringum vatnskör, kúabursta eða á heilu svæðunum í fjósum.

Slík rafspenna getur haft neikvæð áhrif á heilsu, velferð og jafnvel mjólkurframleiðslu. Ef grunur vaknar um flökkustraum er mikilvægt að fylgja því strax eftir með rafmælingum frá viðurkenndum rafvirkja.

**Fyrirlesari – Niels Vitus Hampholt, Velas**

Fyrirlesarinn er **Niels Vitus Hampholt**, byggingaráðgjafi hjá Velas og sérfræðingur í fjósbyggingum. Hann teiknar skipulag í fjósbyggingar og framkvæmir einnig úttektir á fjósum, þar sem meðal annars er hægt að greina vandamál vegna flökkustraums. Niels leggur mikla áherslu á gott flæði í fjósum, velferð dýranna og hagkvæmt og öruggt vinnuumhverfi. Hann mun deila reynslu sinni af flökkustraumsvandamálum í Danmörku og leggja fram mögulegar lausnir.

**Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.**

**Niels Vitus og Valdemar Gísli Valdemarsson svarar spurningum að fyrirlestri loknum.**

**[Hér](https://teams.microsoft.com/l/meetup-join/19%3ameeting_MTUwNWUyNzMtNjk2Yi00NWU1LWFjM2EtNWI1NmNkMzkyYjM5%40thread.v2/0?context=%7b%22Tid%22%3a%222c4fdf37-4096-4a84-9fdb-7665eb4156e4%22%2c%22Oid%22%3a%222e45b9d7-32fa-402e-89b3-a7d25e6cf4c2%22%7d)****getur þú fylgst með fundinum á Teams!**

![Fræðslufundur: Flökkustraumur og áhrif hans á mjólkurkýr](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c0d00529-fdbe-4969-be79-bbb22f660837)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslufundur-flokkustraumur-og-ahrif-hans-a-mjolkurkyr
