---
title: "Fræðslu- og kynningarfundur með Reykjafelli í hádeginu 21. október: Brautarkerfi fyrir iðnaðarlampa"
description: "Fimmtudaginn 21. október verður haldin fræðslu- og kynningarfundur með Reykjafelli á Stórhöfða 27 og í beinu streymi."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslu-og-kynningarfundur-med-reykjafelli-brautarkerfi-fyrir-idnadarlampa"
---

# Fræðslu- og kynningarfundur með Reykjafelli í hádeginu 21. október: Brautarkerfi fyrir iðnaðarlampa

13. október 2021

Fimmtudaginn 21. október verður haldin fræðslu- og kynningarfundur með Reykjafelli á Stórhöfða 27 og í beinu streymi.

**Fimmtudaginn 21. október var haldin fræðslu- og kynningarfundur á Stórhöfða 27 og í beinu streymi**

**Kl: 12:00 - 12:30**

**Ómar Gíslason** kemur frá Reykjafelli og heldur fræðslu- og kynningarfund um **brautarkerfi fyrir iðnaðarlampa.**

Menntaður rafvirki og lýsingarhönnuður og starfaði hjá Zumtobel Group í Noregi í fjölda ára og er nú kominn aftur til Reykjafells sem viðskipta og verkefnastjóri.

**TECTON** lampabrautirnar er lausn sem hentar flestum gerðum verslunar- iðnaðar- og lagarhúsnæðis.

Fljótlegt og einfalt í uppsetningu og sparar dýrmætan tíma rafverkta og lækkar kostnað fjárfesta og notandans.

**TECTON** er ellefu póla brautarkerfi sem getur sameinað lagnir fyrir lampa, neyðarlýsingu og DALI í einni braut.

Það er vel þess virði að kynnast **TECTON** sem er ein af vinsælustu vörum Zumtobel lampaframleiðandans sem hefur verið einn af stærstu vörumerkjum Reykjafells í gegnum tugi ára.

**Fræðslu- og kynningarfundir eru haldnir á Stórhöfða 27, 1. hæð (gengið inn Grafarvogsmegin).**

Rafmennt sér til þess að allir á staðnum fái eitthvað að borða í hádeginu og býður uppá samlokur, gos og kaffi.

**Viðburðinum var streymt á rafmennt.is/streymi og á youtube-rás** **[RAFMENNTAR](https://www.youtube.com/channel/UCRNLEy0KSFBsJ9hT5RZj97g)**

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslu-og-kynningarfundur-med-reykjafelli-brautarkerfi-fyrir-idnadarlampa
