---
title: "Fræðslu- og kynningarfundur með Rafport 25. febrúar"
description: "Fimmtudaginn 25. febrúar verður haldin fræðslu- og kynningarfundur í beinu streymi á RAFMENNT.is/streymi kl.12:00"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslu-og-kynningarfundur-i-hadeginu-25-februar"
---

# Fræðslu- og kynningarfundur með Rafport 25. febrúar

23. febrúar 2021

Fimmtudaginn 25. febrúar verður haldin fræðslu- og kynningarfundur í beinu streymi á RAFMENNT.is/streymi kl.12:00

**Fimmtudaginn 25. febrúar var haldin fræðslu- og kynningarfundur í beinu streymi**

**Arnar Bjarnason** Sölustjóri og Rafiðnfræðingur kemur frá **Rafport** og fjallar um **Free@home**

Free@home kerfið er nútíma raflögn sem er notuð til að stýra ljósum, gluggatjöldum, gólfhita og fleiru á einfaldan hátt. Kerfið getur talað beint við Sonos, Philips Hue og Amazone Alexa. Það er einfalt í notkun og mögulegt að stýra öllum kerfum í gegnum snjalltæki.

Free@home er einföld og snyrtileg laus sem hentar í íbúðarhúsnæði, skrifstofur, verslanir, sumarbústaði og í ákveðnum tilvikum stærri byggingum.

Í lok viðburðarins gefst áhorfendum tækifæri á að spyrja spurninga.

**Mögulegt er að nálgast upptöku af fræðslu- og kynningarfundinum á youtube-rás** **[RAFMENNTAR](https://www.youtube.com/watch?v=7fUSHZVbArk&amp;t=30s)**

![Fræðslu- og kynningarfundur með Rafport 25. febrúar](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/cc260edc-cbf2-4b50-9956-9ccd868f38da)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslu-og-kynningarfundur-i-hadeginu-25-februar
