---
title: "Fræðslu- og kynningarfundur 28. nóvember"
description: "Andri Reyr Haraldsson mun kynna OiRA - rafrænt áhættumat fyrir rafiðnaðinn, í hádeginu fimmtudaginn 28. nóvember í húsnæði RAFMENNTAR á Stórhöfða 27 1. hæð."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslu-og-kynningarfundur-28-november"
---

# Fræðslu- og kynningarfundur 28. nóvember

26. nóvember 2019

Andri Reyr Haraldsson mun kynna OiRA - rafrænt áhættumat fyrir rafiðnaðinn, í hádeginu fimmtudaginn 28. nóvember í húsnæði RAFMENNTAR á Stórhöfða 27 1. hæð.

**Fræðslu og kynningarfundur RAFMENNTAR og SART - var haldinn í hádeginu fimmtudaginn 28. Nóvember.**

**Stórhöfða 27 (1. hæð, gengið inn Grafarvogsmeginn)**

**Kl 12:00 – 13:00**

Andri Reyr Haraldsson kynnti OiRA – rafrænt áhættumat fyrir rafiðnaðinn.

OiRA er gagnvirkt áhættumatstól sem er aðgengilegt í gegnum gagnvirka vefsíðu og er að mestu leyti ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Viðeigandi áhættumat er lykillinn að heilbrigðum vinnustöðum, þó getur framkvæmd áhættumats verið töluvert flókin, sérstaklega fyrir ör- og smáfyrirtæki, þar sem þau kann að skorta úrræði og þekkingu á vinnuvernd til að framkvæma hana á árangursríkan hátt. OiRA miðar að því að sigrast á þessu.

OiRA er þróað og viðhaldið af Vinnuverndarstofnun Evrópu (EU-OSHA) og er byggt á hollenska hættumatstólinu RI&E. OiRA rafrænt áhættumat fyrir rafiðnaðinn er samvinnuverkefni Vinnueftirlitsins og RAFMENNTAR.

**Mögulegt er að nálgast upptöku af fræðslu- og kynningarfundinum á youtube-rás****[RAFMENNTAR](https://www.youtube.com/watch?v=mn0uRa1HL-s)**

![Fræðslu- og kynningarfundur 28. nóvember](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/67a7912e-876c-4a7a-9ef3-b15a1f564231)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fraedslu-og-kynningarfundur-28-november
