---
title: "Fjölbreytt námskeið hjá Rafmennt – fyrir alla sem vilja læra eitthvað nýtt!"
description: "Rafmennt býður upp á fjölbreytt almenn námskeið sem eru ekki bundin við rafiðnað eða tæknigreinar. Námskeiðin eru opin öllum sem vilja efla færni sína, auka öryggi og styrkja sig í daglegu lífi og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/fjolbreytt-namskeid-hja-rafmennt-fyrir-alla-sem-vilja-laera-eitthvad-nytt"
---

# Fjölbreytt námskeið hjá Rafmennt – fyrir alla sem vilja læra eitthvað nýtt!

3. mars 2026

Rafmennt býður upp á fjölbreytt almenn námskeið sem eru ekki bundin við rafiðnað eða tæknigreinar. Námskeiðin eru opin öllum sem vilja efla færni sína, auka öryggi og styrkja sig í daglegu lífi og starfi.

Rafmennt býður upp á fjölbreytt almenn námskeið sem eru ekki bundin við rafiðnað eða tæknigreinar. Námskeiðin eru opin öllum sem vilja efla færni sína, auka öryggi og styrkja sig í daglegu lífi og starfi.

Auk sérhæfðs iðn- og tæknináms býður Rafmennt upp á hagnýt námskeið sem nýtast breiðum hópi – bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Hér fyrir neðan eru dæmi um námskeið sem fram undan eru, sett fram í tímaröð eftir upphafsdegi.

**18. - 25. mars 2026 - Staðkennsla**
**[Drónaflug og myndvinnsla](https://www.rafmennt.is/namskeid/dronaflug-og-myndvinnsla)**
Námskeið um notkun dróna og vinnslu myndefnis – frá undirbúningi og upptöku til frágangs og birtingar.

**Hefst 26. mars 2026 - Staðkennsla**
**[Ekki láta hakka þig! – Öryggisvitund á netinu](https://www.rafmennt.is/namskeid/oryggisvitund-a-netinu)**
Fyrir þá sem vilja verjast netógnum og efla öryggisvitund í stafrænu umhverfi – bæði í starfi og einkalífi.

**Hefst 27. mars 2026 - Staðkennsla**
**[Skyndihjálp - almenn](https://www.rafmennt.is/namskeid/skyndihjalp-almenn)**
Hagnýtt námskeið þar sem farið er yfir viðbrögð við slysum og bráðum veikindum. Þekking sem getur skipt sköpum á vinnustað, heimili eða í frítíma.

**Alltaf opið! - Fjarnám**
**[Fjármál heimilisins](https://www.rafmennt.is/namskeid/fjarmal-heimilsins)**
Grunnnámskeið í fjármálalæsi þar sem farið er yfir rekstur heimilis, sparnað, lán og áætlanagerð.

**Alltaf opið! - Fjarnám**
**[Sparnaður og fjárfestingar](https://www.rafmennt.is/namskeid/sparnadur-og-fjarfestingar)**
Yfirlit yfir mismunandi sparnaðarleiðir og grunnatriði fjárfestinga – með áherslu á upplýstar og ábyrgar ákvarðanir.

**Alltaf opið! - Fjarnám**
**[Lán og lánshæfi](https://www.rafmennt.is/namskeid/lan-og-lanshaefi)**
Farið er yfir helstu tegundir lána, hvernig lánshæfi er metið og hvað skiptir máli við lántöku.

**Alltaf opið! - Fjarnám**
**[Fjármál heimilisins - allur pakkinn](https://www.rafmennt.is/namskeid/allur-pakkinn)**
Heildstæð nálgun á fjármálum heimilisins þar sem þátttakendur fá dýpri innsýn og verkfæri til að taka upplýstar fjárhagslegar ákvarðanir.

**7. - 9. apríl 2026 - Staðkennsla**
**[Hjólaviðgerðir](https://www.rafmennt.is/namskeid/hjolavidgerdir)**
Fyrir þá sem vilja læra að sinna viðhaldi og einföldum viðgerðum á reiðhjólum. Hentar bæði byrjendum og áhugasömum hjólreiðafólki.

Námskeiðin eru opin öllum og henta jafnt einstaklingum sem vilja bæta við sig þekkingu og fyrirtækjum sem vilja efla starfsfólk sitt.

👉 Nánari upplýsingar og skráning er að finna undir **Endurmenntun - Námskeið í boði**

![Fjölbreytt námskeið hjá Rafmennt – fyrir alla sem vilja læra eitthvað nýtt!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/5fab1d48-7311-47bd-903f-381f5ea96dcd)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/fjolbreytt-namskeid-hja-rafmennt-fyrir-alla-sem-vilja-laera-eitthvad-nytt
