---
title: "\"Einn lás, eitt líf\""
description: "Verkefninu \"Einn lás, eitt líf” er ætlað að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/einn-las-eitt-lif"
---

# "Einn lás, eitt líf"

15. febrúar 2019

Verkefninu "Einn lás, eitt líf” er ætlað að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar.

Verkefninu "Einn lás, eitt líf", sem er samvinnuverkefni Samtaka rafverktaka, Rafiðnaðarsambands Íslands og Mannvirkjastofnunar, er ætlað að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar. Öryggislásarnir eru félagsmönnum að kostnaðarlausu og nú þegar hafa 900 lásar verið afhentir en til stendur að afhenda hátt í 1500 lása áður en yfir lýkur.

Ef þú átt eftir að fá sendan öryggislás þá skráir þú þig á "**[Mínar síður](https://innskraning.island.is/?id=thjonusta.rafis.is)**" á vef RSÍ og gefur þar upp nafn og gsm númer. Einfalt, fljótlegt og þægilegt.

![&quot;Einn lás, eitt líf&quot;](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/cff64fe6-266c-420b-b79a-810060201e02)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/einn-las-eitt-lif
