---
title: "Dale Carnegie námskeið í október"
description: "RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/dale-carnegie-namskeid"
---

# Dale Carnegie námskeið í október

9. september 2020

RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum, styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi.

RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum, styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi. Námskeiðið nýtist bæði í vinnu og einkalífi.

**16. - 18. október 8:30 - 17:00**

Samkomulagið gerir það að verkum að hægt er að bjóða félagsmönnum RSÍ og SART, sem greitt er af í menntasjóð, námskeiðið á 45.000 en fullt verð er 159.000 kr.

[Nánar og skráning](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/dale-carnegie-almennt)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/dale-carnegie-namskeid
