---
title: "Dale Carnegie námskeið: Samskiptahæfni, sjálfstraust og eldmóður"
description: "RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/dale-carnegie-namskeid-samskiptahaefni-sjalfstraust-og-eldmodur"
---

# Dale Carnegie námskeið: Samskiptahæfni, sjálfstraust og eldmóður

20. maí 2020

RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum, styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi. Námskeiðið nýtist bæði í vinnu og einkalífi.

#### **Námskeið 19. - 21. júní 2020**

RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Fyrsta námskeiðið sem við kynnum er 3ja daga útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum, styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi. Námskeiðið nýtist bæði í vinnu og einkalífi.

Samkomulagið gerir það að verkum að hægt er að bjóða félagsmönnum RSÍ og SART, sem greitt er af í menntasjóð, námskeiðið á 45.000 en fullt verð er 159.000 kr.

**Um námskeiðið**: Með því að auka sjálfstraust og færni í samskiptum við aðra munt þú hafa þau áhrif sem þú þarft til að ná nýjum hæðum í leik og starfi. Þú verður meira sannfærandi í tjáskiptum og átt auðveldara með að takast á við breytingar, stjórna streitu og hafa hvetjandi áhrif á aðra. Dale Carnegie námskeiðið hjálpar þér að verða snillingur í mannlegum samskiptum. Það mun gera þér kleift að þrífast í hvaða umhverfi sem er og þú munt uppgötva hvernig á að mynda nánari og meira gefandi sambönd.

Það sem við förum yfir á námskeiðinu:

- Stækka þægindahringinn og auka sjálfstraust
- Rækta varanleg sambönd
- Muna nöfn og nota þau
- Veita öðrum innblástur
- Kynna hugmyndir á skýran og hnitamiðaðan hátt
- Takast á við ágreining á háttvísan máta
- Nota sannfæringarkraft
- Stjórna streitu og viðhorfi
- Aðlaga okkur að mismunandi samskiptastílum
- Sýna leiðtogafærni

**Innifalið**: Handbók, Gullna reglubókin, 30 daga áskrift hjá Storytel þar sem hægt er að hlusta á bækurnar Vinsældir og áhrif og Lífsgleði njóttu eftir Dale Carnegie á ensku. Útskriftarskírteini frá Dale Carnegie & Associates. Persónulegur aðgangur að þjálfara meðan á námskeiðinu stendur.

[Nánar og skráning](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/dale-carnegie-almennt)

![Dale Carnegie námskeið: Samskiptahæfni, sjálfstraust og eldmóður](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/9b3c02b1-30e1-4931-8db7-14b9a883a3a5)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/dale-carnegie-namskeid-samskiptahaefni-sjalfstraust-og-eldmodur
