---
title: "Dagur rafmagnsins 23. janúar"
description: "Í tilefni dagsins ætlar RAFMENNT sem er í eigu Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ) og Samtaka rafverktaka (SART) að vera með opið hús að Stórhöfða 27. Á opna húsinu er ætlunin að kynna endurmenntun…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/dagur-rafmagnsins-23-januar"
---

# Dagur rafmagnsins 23. janúar

17. janúar 2020

Í tilefni dagsins ætlar RAFMENNT sem er í eigu Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ) og Samtaka rafverktaka (SART) að vera með opið hús að Stórhöfða 27. Á opna húsinu er ætlunin að kynna endurmenntun rafiðnaðarins ásamt því að skýra frá þeim verkefnum sem RAFMENNT sinnir fyrir rafiðnaðinn í landinu.

Í tilefni dagsins ætlar RAFMENNT sem er í eigu Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ) og Samtaka rafverktaka (SART) að vera með opið hús að Stórhöfða 27.

Á opna húsinu er ætlunin að kynna endurmenntun rafiðnaðarins ásamt því að skýra frá þeim verkefnum sem RAFMENNT sinnir fyrir rafiðnaðinn í landinu.

**Dagskrá:**

16.15 Ávörp

**Hjörleifur Stefánsson**

Formaður SART og stjórnar RAFMENNTAR

**Kristján Þórður Snæbjarnarson**

Formaður RSÍ og stjórnarmaður RAFMENNTAR

**Kristín Birna B. Fossdal**

Deildarstjóri rafbúnaðar og stjórnkerfa hjá ON

**Þór Pálsson**

Framkvæmdastjóri RAFMENNTAR

**Léttar veitingar í boði**

---

Fimmtudag 23. janúar er dagur rafmagnsins á Norðurlöndum. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur að frumkvæði orkufyrirtækja á Norðurlöndum um nokkurra ára skeið.

Tilgangurinn með deginum er að vekja athygli á mikilvægi rafmagns í samfélaginu, í leik og starfi. Án rafmagns er ljóst að hér væru minni lífsgæði, hæg þróun og lágt menntunarstig.

Hingað til hefur verið lögð áhersla á að minna á hvað við höfum það gott; við höfum gott aðgengi að rafmagni og orkan okkar er ódýr og hrein, þar sem 99,99% raforku á Íslandi er framleidd með endurnýjanlegum hætti.

Eins og allir landsmenn vita vorum við rækilega minnt á mikilvægi þess að hafa rafmagn víða um land í þessum mánuði.

![Dagur rafmagnsins 23. janúar](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/52af43d3-d86f-4206-8229-219a24f02ab3)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/dagur-rafmagnsins-23-januar
