---
title: "Áríðandi tilkynning vegna sveinsprófa febrúar 2023"
description: "ATH. Áríðandi tilkynning til próftaka í Reykjavík, þetta á eingöngu við þau sem eiga eftir að koma í Raflagnateikningu, Mælingar og Verklega prófið í sveinsprófinu núna í febrúar 2023."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/aridandi-tilkynning-vegna-sveinsprofa-februar-2023"
---

# Áríðandi tilkynning vegna sveinsprófa febrúar 2023

6. febrúar 2023

ATH. Áríðandi tilkynning til próftaka í Reykjavík, þetta á eingöngu við þau sem eiga eftir að koma í Raflagnateikningu, Mælingar og Verklega prófið í sveinsprófinu núna í febrúar 2023.

**ATH. Áríðandi tilkynning til próftaka í Reykjavík**

Þetta á eingöngu við þau sem eiga eftir að koma í Raflagnateikningu, Mælingar og Verklega prófið í sveinsprófinu núna í febrúar 2023.

Vegna veðurviðvörunar að morgni 7. febrúar 2023 hefur verið ákveðið að færa prófið í **Raflagnateikningu** til kl: 13:00-16:00 (lengri próftími 13:00-16:30) þann 7. febrúar.

Breytingarnar hafa áhrif á dagsetningar bæði í Mælingarprófunum sem áttu að vera eftir hádegi þann 7. febrúar og einnig hjá einhverjum í verklega prófinu.

**Próftakar fá sendan tölvupóst með upplýsingum, vinsamlega farið vel yfir ykkar dagskrá og athugið hvort hún hafi breyst.**

![Áríðandi tilkynning vegna sveinsprófa febrúar 2023](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/78fa5978-7a3d-4f34-8640-961883c22399)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/aridandi-tilkynning-vegna-sveinsprofa-februar-2023
