---
title: "Afhending sveinsbréfa mars 2025"
description: "Afhending sveinsbréfa fór fram við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri þann 28. mars og Hilton Reykjavík Nordica laugardaginn 29. mars 2025."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-mars-2025"
---

# Afhending sveinsbréfa mars 2025

31. mars 2025

Afhending sveinsbréfa fór fram við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri þann 28. mars og Hilton Reykjavík Nordica laugardaginn 29. mars 2025.

Afhending sveinsbréfa fór fram við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri þann 28. mars og Hilton Reykjavík Nordica laugardaginn 29. mars 2025.

Alls voru 87 nemendur úr rafiðngreinum sem fengu sveinsbréfin sín afhent í Reykjavík en það eru 80 nemendur í rafvirkjun, 2 rafvélavirkjar og 5 í rafveituvirkjun.

Á Akureyri voru 25 nemendur úr rafiðngreinum sem fengu afhent sveinsbréf það eru 2 í rafeindavirkjun, 18 í rafvirkjun, 3 í rafveituvirkjun og 2 nemendur í rafvélavirkjun.

Verðlaun vegna góðs árangurs á sveinsprófum rafvirkja í febrúar 2025 hlutu Ágúst Már Sigurðsson og Stefán Trausti Njálsson fyrir skriflegan hluta, Guðmundur Ragnar Jónasson fyrir verklegan hluta og Heiðar Snær Bjarnason fyrir heildar árangur.

Frá afhendingu í Hofi, Akureyri þann 28. mars

Myndir frá athöfn má nálgast á [Flickr síðu](https://flic.kr/s/aHBqjBGTPc) Rafmenntar.

![Afhending sveinsbréfa mars 2025](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/7899b9a1-d787-41c3-b64d-3640844812ab)

![Afhending sveinsbréfa mars 2025](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/fb7890cc-62c2-405b-b8c8-825f0f933136)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-mars-2025
