---
title: "Afhending sveinsbréfa í september"
description: "Sveinsbréf í rafiðngreinum verða afhent við hátíðlegar athafnir á Hilton Reykjavík Nordica 18. september og í Hofi á Akureyri 25. september."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-i-september"
---

# Afhending sveinsbréfa í september

14. september 2026

Sveinsbréf í rafiðngreinum verða afhent við hátíðlegar athafnir á Hilton Reykjavík Nordica 18. september og í Hofi á Akureyri 25. september.

Rafmennt afhendir sveinsbréf í rafiðngreinum við tvær hátíðlegar athafnir í september, í Reykjavík og á Akureyri.

- **Föstudaginn 18. september kl. 15–17** - Hilton Reykjavík Nordica
- **Föstudaginn 25. september kl. 17–19** - Hof á Akureyri

Nýsveinar að þessu sinni eru **121 talsins** og skiptast eftir greinum sem hér segir:

- **109 rafvirkjar**
- **5 rafveituvirkjar**
- **7 rafeindavirkjar**

Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Viðburðurinn er jafnframt tilefni til að fagna árangri nýsveina og þeirri fagmennsku sem þeir færa með sér inn í atvinnulífið.

Dagskráin verður að vanda með ræðuhöldum og afhendingu viðurkenninga fyrir góðan árangur á sveinsprófi.

Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og hlakkar til að fagna með þeim.

![Afhending sveinsbréfa í september](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/8e824588-7c57-42be-81b1-e65536789f45)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-i-september
