---
title: "Afhending sveinsbréfa í apríl"
description: "Föstudaginn 10. apríl fór fram hátíðleg athöfn á Hilton Nordica þar sem nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-april"
---

# Afhending sveinsbréfa í apríl

14. apríl 2026

Föstudaginn 10. apríl fór fram hátíðleg athöfn á Hilton Nordica þar sem nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf.

Föstudaginn 10. apríl fór fram hátíðleg athöfn á Hilton Nordica þar sem nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf.

Alls hlutu **102 nýsveinar** sveinsbréf að þessu sinni. Skiptingin eftir greinum var eftirfarandi:

- **80 rafvirkjar**
- **12 rafveituvirkjar**
- **10 rafeindavirkjar**

Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Viðburðurinn er jafnframt tilefni til að fagna árangri nýsveina og þeirri fagmennsku sem þeir færa með sér inn í atvinnulífið.

Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í störfum sínum.

Myndir má nálgast hér á[Flickr](https://www.flickr.com/photos/rafmennt/albums/72177720333079930)síðu Rafmenntar.

![Afhending sveinsbréfa í apríl](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/0e497d18-a6d0-4dc2-b2d3-482766c24f13)

![Afhending sveinsbréfa í apríl](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/3e059ea9-7a35-47fc-aa16-9b49a3f37926)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-april
