---
title: "Afhending sveinsbréfa á Hilton Nordica"
description: "98 nýsveinar í rafiðngreinum tóku við sveinsbréfum sínum við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 18. september."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-a-hilton-nordica"
---

# Afhending sveinsbréfa á Hilton Nordica

23. september 2026

98 nýsveinar í rafiðngreinum tóku við sveinsbréfum sínum við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 18. september.

Föstudaginn 18. september fór fram hátíðleg athöfn á Hilton Reykjavík Nordica þar sem 98 nýsveinum í rafiðngreinum voru afhent sveinsbréf. Skiptingin eftir greinum var eftirfarandi:

- 90 rafvirkjar
- 5 rafveituvirkjar
- 3 rafeindavirkjar

Alls ljúka 121 nýsveinar sveinsnámi í september. Síðari afhendingin fer fram í Hofi á Akureyri föstudaginn 25. september. Þar taka 19 rafvirkjar og 4 rafeindavirkjar við sveinsbréfum sínum.

**Viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur**

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á sveinsprófi.

Andri Reyr Haraldsson, formaður FÍR – Félags íslenskra rafvirkja, afhenti viðurkenningar fyrir hönd félagsins. Konráð Karl Kristjánsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á skriflegu sveinsprófi í rafvirkjun. Alex Andri Jónsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á verklegu prófi.

Ármann Guðmundsson, formaður Félags rafeindavirkja, afhenti viðurkenningar fyrir hönd félagsins. Xabier Þór Tejero Landa hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur bæði á skriflegu og verklegu sveinsprófi í rafeindavirkjun.

Pétur Hákon Halldórsson, formaður SART – Samtaka rafverktaka, afhenti viðurkenningar fyrir hönd samtakanna fyrir heildarárangur á sveinsprófi. Í rafvirkjun voru Arnar Flókason og Brynjar Snær Ísfeld Erlendsson hnífjafnir og hlutu því báðir viðurkenningu. Í rafeindavirkjun hlaut Xabier Þór Tejero Landa viðurkenninguna. Hann hlaut þar með allar þrjár viðurkenningarnar sem veittar voru í rafeindavirkjun.

Afhending sveinsbréfa er mikilvægur áfangi í námi fagfólks í rafiðnaði og markar formleg lok sveinsnáms. Rafmennt óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í störfum sínum.

Myndir frá athöfninni má nálgast á **[Flickr-síðu](https://www.flickr.com/photos/rafmennt/)** Rafmenntar.

![Afhending sveinsbréfa á Hilton Nordica](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/b2c120d7-8175-42fd-a14c-d4acc98366e5)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-a-hilton-nordica
