---
title: "Afhending sveinsbréfa á Akureyri"
description: "Afhending sveinsbréfa í rafvirkjun og rafeindavirkjun fór fram föstudaginn 24. maí sl. í Hofi á Akureyri kl. 17:15-18:30."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-a-akureyri"
---

# Afhending sveinsbréfa á Akureyri

28. maí 2019

Afhending sveinsbréfa í rafvirkjun og rafeindavirkjun fór fram föstudaginn 24. maí sl. í Hofi á Akureyri kl. 17:15-18:30.

Afhending sveinsbréfa í rafvirkjun og rafeindavirkjun fór fram föstudaginn 24. maí sl. í Hofi á Akureyri kl. 17:15-18:30. Dagskráin var að vanda glæsileg og ávörpuðu þeir Aðalsteinn Arnarsson, fyrir hönd rafverktaka á Norðurlandi, og Finnur Víkingsson fyrir hönd FRN, hópinn. Jón Ólafur Halldórsson, formaður sveinsprófsnefndar, sá um afhendingu sveinsbréfanna en í þetta skiptið voru 11 sem fengu sveinsbréf í rafvirkjun og einn í rafeindavirkjun.

Að dagskrá lokinni var nýsveinum og gestum þeirra boðið upp á léttar veitingar.

![Afhending sveinsbréfa á Akureyri](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/8245581c-df23-4059-a96d-3eaa188a0815)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/afhending-sveinsbrefa-a-akureyri
