---
title: "1GB - 10Gb, Aðgangskerfi Mílu - fyrirlestur"
description: "Kvödfyrirlestur Rafmenntar í þetta sinn fjallar um Aðgangskerfi Mílu"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/1gb-10gb-adgangskerfi-milu-fyrirlestur"
---

# 1GB - 10Gb, Aðgangskerfi Mílu - fyrirlestur

28. nóvember 2018

Kvödfyrirlestur Rafmenntar í þetta sinn fjallar um Aðgangskerfi Mílu

*Miðvikudaginn 5. desember kl. 20:00 mun Kristinn I Ásgeirsson forstöðumaður Aðgangskerfa hjá Mílu kynna breiðbandstengingar á kerfum Mílu, með áherslu á ljósleiðaratengingar. Hann mun ræða högun ljósleiðara uppbyggingar Mílu og ástæður þess að Míla byggir kerfin upp með PON högun í stað svokallaðrar P2P högunar. Einnig mun Kristinn fjalla um frágang á innanhúslögnum fjölbýlishúsa þ.e. lagnir frá inntaki í kjallara og upp i íbúð.*

*Að lokum verður fjallað um næstu kynslóðar net sem líklega verða að veruleika á næstu árum.*

*Skráið ykkur og kíkið við eða fylgist með streymi á netinu.*

[Nánari upplýsingar hér!](https://www.rafmennt.is/namskeid/fagnamskeid/1gb-til-10gb-adgangsnet-milu)

![1GB - 10Gb, Aðgangskerfi Mílu - fyrirlestur](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/86f03f08-b21a-4987-bba3-797c479bffc9)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/1gb-10gb-adgangskerfi-milu-fyrirlestur
